30.12.2017 | 06:59
Áramótaljóð 30.12.17
Það er undur hvað aldir silast
en árin líða fljótan hjá.
Njóttu á meðan ekki þú bilast
alls í heimi er bestan má.
Fíkn 30.12.17
Manns er þáttur mörgu að voga
máli ei skiptir kyn og heiti.
Öll hans fíkn er af einum toga
umhverfis að mestu leiti.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2017 | 23:51
Fötin skapa manninn 27.12.17
Klæða þær úr ei við slugsum,
eðlið vill þvílíkt ei trassa
en konur teljast betri í buxum
en berrassa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2017 | 22:53
Memory
Jólasaga Svarra: Pabbi minn, skrifað 8.3.2011
Þegar ég var að ala upp börnin mín voru reknar kristilegar sumarbúðir á Eiðum. Við reyndum að koma okkar börnum þangað eftir föngum. Eitt sinn í þessum sumarbúðum lenti sonur minn á herbergi með tveim öðrum strákum sem fundu mikið til sín af ættgöfgi sínu. Kom það strax í ljós er þeir fóru að kynna sig á herberginu þeirra . Annar sagði: ,,Pabbi minn er prestur og kallaður séra en hinn greip þá framm í fyrir honum og sagði: ,,Pabbi minn er nú biskup og stundum kallaður hágöfgi. Sonur minn vildi ekki láta þá eiga mikið hjá sér og sagði: ,,Pabbi minn er 180 kíló og þegar fólk sér hann segir það, Guð minn góður!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2017 | 20:39
Launahækkun biskups 44 sinnum hærri en öryrkja og aldraðra 21.12.17
Hann má tíðum breyskur vera tvískinnaleikurinn,
tollheimtumennirnir krjúpa ekki á hnjánum.
- Nú er tekið af fátækum og bætt við biskupinn,
svo biðji hann um að vaxi fé á trjánum.
Ætli Drottinn gangist ekki upp við fé
er þá ekki mál að táta það í té?
Biskup á stóli,
ber ég því hóli
að færa út okkar veraldarvé!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2017 | 10:57
Dómsmálafrúin Sigríður Andersen ber af sér allar sakir 19.12.17
Hún er dásamleg dómsmálafrúin en dálítið þó sýnist viðsnúin á dyggðugri dómsmála braut. Hortug lagði heiðarleik að veði og heimurinn endurkosning réði, - manndómur víðast virðist flúinn. - Menn þurfa enga æru í land vors stjórnmálaheimi, menn sullast bara í þessu geimi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2017 | 23:58
Tvískinnungur Katrínar, upp á gamla mátann 19.12.17
Ég hlustaði dálítið á umræður frá Alþingi í dag. Mikil vorkunn fannst mér Katrínu forsætisráðherra það að þurfa að koma aftur og aftur í ræðustól út af fyrirspurnum um það sem hún hefur nú gert samkomulag um til framkvæmda með hinum ríkisstjórnarflokkunum og svo hitt sem hún hafði sagt eða lofað á þveröfugan veg í stjórnarandstöðu og fyrir kosningar.
Vil ég þar þakka Loga formanni Samfylkingingarinnar sérstaklega fyrir skelegga framgöngu við að fletta ofan af svikum hennar, lítilþægð og ótrúmennsku, að ég tel hroðalega gagnvart lífeyrisþegum og sýna hennar lítilmennskukarakter trúverðuglega.
Þetta háttarlag milli stjórnar og stjórnarandstöðu hefur gengið á sama háttinn mjög lengi hér í landi og mikið hefur að undanförnu verið talað um að bæta stjórnmálin en svona er útkoman samt eina hringferðina enn í spillingarherferðinni...
Það er sjálfsagt ekki meining neins er sækir til Alþings að afsala sér ærunni en einhvernvegin hefur mér fundist að þannig hafi farið fyrir flestum eða öllum sem hefur tekist pota sér til valda og metorða í gömlu flokkunum...
Lokaorð: Manns í lífi er ljótur bagi, lygi og glæpir sitt á hvað. Þingmönnum oftast allt í lagi, - endurkosnir fyrir það!
Bloggar | Breytt 20.12.2017 kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.12.2017 | 09:45
Stjórnarskrá Íslands býður upp á trúfrelsi 8.12.17
Vinur minn sendi mér morgunandakt. Hann kveður Loga Einarsson hafa kostað Akureyrabæ 6.500 milljónir með því að gagnrýna og saksækja Snorra í Betel fyrir trúarskoðanir sínar, sem ég sé ekki að hafi káfað neitt upp á hann.
Nú er þessi maður orðinn formaður Samfylkingarinnar. Átti hann ekki að vita að hann væri að gera vitleysu með þessari gagnrýni og hver tapar mest á þessu og borgar brúsann? Það eru ekki Logi, það eru auðvitað almennir borgarar og maðurinn sem er hrakinn úr vinnu sinni saklaus af ótrúlegu siðleysi og fantaskap og eru ekki dæmdar nema smánarlegustu skaðabætur fyrir ofsóknirnar af dómstólum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2017 | 02:06
Ein sturlunin enn 4.12.17
Eftir hrunið var Gylfi Arnbjörnsson formaður ASÍ í þeirri aðstöðu að fá því ráðið hvort verðtrygging af húsnæðislánum yrði afnumin eður ei. Hann valdi að hafa hana áfram. Sagt var að bankarnir hefðu grætt á því 3-4 hundruð milljarða.
Ég hef oft sett fram spurningu um hversu fólk gæti ímyndað sér að hann hafi fengið mikið mútufé að launum frá bönkunum, eða afhverju réðist hann svo harkalega á almannahagsmuni? Enn eru stjórnvöld við sama heygarðshornið:
Enn er ein ríkisstjórnin að ríða hér á vað
ráðin í að bæta allt er hægt er að laga.
Verðtrygging húsalána stendur þó í stað,
sturlun fleiri trúi ég mega okkur plaga.
Bloggar | Breytt 5.12.2017 kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2017 | 06:24
Komin á koppinn 1.12.17
Nú er komið vel í ljós
það sem ljóslegast mátti vera
að lítið myndu fátækir
úr stjórnarmyndun bera
og sýnist mér með Katrínu
sem Jón heitinn ræfilinn séra
að hellst í embættin troði sér
fólk sem best væri að skera.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar