30.9.2017 | 15:58
Fólkið er fljótt að gleyma. - Vinstri grænir stærsti flokkurinn 30.9.17
Steingrímur formaður vinstri grænna sló skjaldborg um auðvaldið og níddi fátæka í skítinn er hann komst að sem fjármálaráðherra í Vinstri stjórninni. Þeir sem ekki kóuðu með í flokknum urðu bara að yfirgefa hann.
Ekki minnist ég annars en að Katrín sem nú er formaður hafi tekið þátt í óhroðanum af fullri einbeitingu, allavega minnist ég ekki að nokkru sinni hafi hún hreyft mótmælum til betri vega, enda fékk hún formannssæðið að launum er Steingrímur svo illa þokkaður af þjóðinni sem ég held að nokkur stjórmálamaður hafi nokkurntíman orðið í landinu, allavera í minni tíð, eldi borgara, sá sér ekki annars kost flokksins vegna en að draga sig til hlés. Svo brosir Katrín út í bæði, nikkar höfðinu og þá er allt fyrirgefið, - töfrar eða hvað?
En við höfum ekki enn séð eftirleikinn. Eins og horfir nú í skoðanakönnunum eru það bara Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri grænir sem geta mynda tveggja flokka stjórn eftir kosningar og þá þurfa fátælingar ekki að vænta blómlegri daga en verið hafa.
Nú hópast fólkið með atkvæðin sín um Katrínu og halda sjálfsagt að hún standi sig betur næst en það hefur nú verið mín skoðun og reynsla til langs tíma, að þeir sem hafa komist upp á lag með að ljúga og svíkja og stela verður það sem lífsárátta og list og sökkva alltaf dýpra og dýpra í óhroðann og spillinguna.
Ég segi því enn og aftur: kjósið ykkur ekki fulltrúa sem eitt sinn hefur svikið ykkur. Það er sem betur fer oftast og víðast hvar einhverja á að veðja sem ekki hafa verið reyndir að lygum, svikum og svínaríi.
Gefum þeim ekki annað tækifæri til misferlanna. Ég tel það óhagganlega staðreynd að þeir ganga alltaf lengra og lengra á ógjæfubrautinni.- Kjósum flokk fólksins, flokk vona og samúðar!
Bloggar | Breytt 1.10.2017 kl. 04:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2017 | 07:38
Græðgin 30.9.17
Græðgin flestum kemur í koll
þeir kunna sér ekkert hóf.
Ef að þú lendir í sukki og soll
sýndu vinur löstunum þóf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2017 | 22:13
Illþefjan 29.9.17
Þeir vilja lykta illa
sem þiggja ei þrifabað.
Nú eru margir þingmenn
að hleypa á hundavað.
Þar reisir sig margur rakki
og reynir að blekkja þjóð
því oftast í lygunum liggur
lausnin að kosning sé góð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2017 | 12:05
Framapot 29.9.17
Frambjóðendur fala nú
fylgi og sínum lygum spú.
Þeir vilja fólki vekja trú
þeir vinni bót á þeirra eymd.
En er þeir baki í það snú
öll eru loforð þegar gleymd,
þá reynist flestra framtakið
að fara að mata auðvaldið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2017 | 21:37
Til ritfélaga 28.9.17
Yndið vex og yndið dvín
oft er ég legg í stöku.
Andaktshljómur orða þín
er sem rjómi á köku.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2017 | 07:27
Bragð er að þá barnið finnur 28.9.2017
Ég vann við virkjunarframkvæmdir á Suðurlandi í tvö ár er Marta mín fædd 1967 var lítil og við sáumst því sjaldan.
Bebba konan mín var með hana heima í Norðfirði hjá föður mínum öldruðum sem hugsaði um skepnurnar.
Þeirra stoð og stytta til hverrar hjálpar sem þarfnaðist var jafnaldri minn Árni á Kirkjubóli þar næsta bæ innar í dalnum en hann var þá ókvæntur og bjó með foreldrum sínum.
Ég kom bæði árin heim í göngurnar og í annað það sinn snýst sagan um. Þá kom ég heim svo síðla kvölds að Marta mín var sofnuð í sínu rimlarúmi sem stóð þeim megin er Bebba svaf.
Svo kom að því að við hjónin háttuðum og vorum bæði lögst fyrir er Marta vaknaði skyndilega og reis upp í rúminu og studdi sig við rimlana og varð ákaflega glöð á svipinn er hún sá mig. Svo hrópaði hún upp yfir sig: Árni! Árni! Árni!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2017 | 19:00
Ræfladót í ríkisstjórn hefur frekar verið regla en undantekning 19.9.17
Ríkisstjórnarflokkarnir voru búnir að semja fjárlög sem þýddu enn meiri skattahækkanir á öryrkja og aldraða en þau 20 þúsund sem þeir áttu að fá í launahækkanir um áramót og þar með að hækka húsnæðislán almennings um fjóra milljarða. Er ekki dásamlegt að bundinn var endi á þetta soralega samstarf? Hvort svo að nú megi taka betra við er undir kjósendum komið að miklu leiti allavega. Reyndum að bjarga því sem bjargað verður. Kjósum flokk fólksins!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2017 | 15:03
Skilningur 18.9.17
Það virðist sjaldan vellukkað,
viðra sín mál við bjálfa,
- Flestir skilja ei út fyrir það
er á beint við þá sjálfa.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2017 | 02:14
Minning 18.9.17
Og nú er hann grafinn og gistir vart Hel,
hér góðsemi hans minnist fólk víðast.
Það kom sér betur ég knúsaði hann vel
er kvaddi ég vininn minn síðast
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2017 | 16:10
Söknuður 17.9.17
Einmana horfir útí blá.
unga stúlkan veik af þrá.
Nú ertu vinur mér farinn frá
og framtíð hylur þokan grá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 31723
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar