16.11.2017 | 22:09
Rokkandi gengi 16.11.°17
Það þarf ekki að fara um það
svo ýkja mörgum orðum
að vilji sækja að vandinn
oft á hverja hlið.
Það er meira en að segja það
að allt fari ekki úr skorðum
ef þú tekur manneskju
inn á heimilið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2017 | 02:04
Kvörtun í gamla daga 16.11.17
Þú keyrir svo hratt að dalurinn
er allur í einu ryki.
Ég hata þig og helst mig langar
að berja þig með priki.
Í gamla daga þegar ég var ungur var helsta keppikefli ungra ökuþóra er komust á góðar drossíur að keyra svo hratt eftir sveitinni að reykjamökkurinn slitnaði ekki frá Skorrastaðarhæðinni og þar til bíllinn hvarf upp fyrir Skuggahlíðarsneiðingar, það er fyrsta brekkan úr dalnum til Oddsskarðsins...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 16. nóvember 2017
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar