30.6.2014 | 09:58
Hjónaband í vonum 30.6.14
Ef að þú hjónaband hefur í vonu
helsta er ráð mitt á þennan veg:
Taktu ekki saman við kvenréttarkonu
sú kona er yfirleitt hundleiðinleg.
Þegar að ofstopinn einn ræður för
óvegu reikað fær sál nauðans hver.
Þar hafast aðeins við heiglar og skör
sem með heilu geta ekki tekið á sér.
Já, ef þú hjónaband hefur í vonu
huga að vandanum ef verður séð:
Takirðu saman við kvenréttarkonu
sú kona er vísust að rústa þitt geð.
Bloggar | Breytt 1.7.2014 kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2014 | 19:24
Að gera 29.6.14
Leggðu þig fram við allt sem þú gerir,
þrjóskastu við ef þig tekur í stert.
Svo má og vel að sem best þú þig berir,
bullaðu að þetta sé ei lengi gert.
Bloggar | Breytt 1.7.2014 kl. 05:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2014 | 18:18
Kindahatur 25.6.14
Ef að rollur rölta hjá
reiði tíðum sækir að.
Ég læt ýmist á mig fá
annað meira en það.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2014 | 17:15
Öryggi reynslunnar 21.6.14
Ég sagði ungri konu sem var að temja fyir mig á tölt að ég hefði ekki látið klárgeng hross stíga brokkspor á árum áður er ég töltsetti þau, aðeins bara fet eða stökk ef um hraðabreytingar var að ræða frá því að nudda þeim á töltið upp af fetinu. Hún svaraði mér því til að hún myndi nú nota sínar nýrri tamningaraðferðir jafnt sem áður að leyfa þeim að brokka líka jöfnum höndum og daginn eftir hljóðaði ljóð mitt dagsins á þessa leið:
Að viskan sé stopul mér virðist í reynd
og vitleysunnar drýgst sé oft nenna.
Æskan er dýrkuð, við eldri erum gleymd
með öryggi af reynslunni að kenna.
Til hollustu ráðanna hef bogann spennt,
hampað og viskunni í stuttum línum.
Ráð dreg ég af því er reynslan hefur kennt,
ráhollur að sönnu er ég vinum mínum.
Bloggar | Breytt 29.6.2014 kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2014 | 13:07
Af góðum hug 20.6.14
Oft má fólki auka dug
til yndislegra kynna
sé það gert af góðum hug
góða lygi að spinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2014 | 13:42
Hvað að okkur snýr 13.6.14
Það tel ég sagt með sanni,
sál hver að mörgu býr.
Hliðar eru margar á manni
og misjafnt hvað að snýr.
Bloggar | Breytt 20.6.2014 kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2014 | 09:18
Hvalveiðar 13.6.14
Bandaríkin víst enn eru þar
almestir veiðimanna
og heimsins mestu hræsnar
er hvalveiðar okkur banna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2014 | 20:05
Huga að hjartanu 12.6.14
Því ég bendi á þetta og hitt
að þar er margt í skeikum,
- ekki hundsa hjartað þitt,
haf það í öllum leikum.
Bloggar | Breytt 14.6.2014 kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2014 | 10:55
Lögreglan 12.6.14
Oftar er en margan mætti gruna
menn af lágkúru vilji skemmta sér.
Alltaf skaltu óttast lögregluna
oftast vill hún bara lumbra á þér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.8.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar