26.10.2012 | 08:11
SOS SOS SOS Opið tölvubréf
SOS SOS SOS 26.10.2012
Góðan daginn Björn Valur Gíslason,
það ku hafa komið fram í orðræðu þinni í fjölmiðlum að undanförnu að þú og vinstri grænir hafi bjargað Íslandi. Fyrst svo er og þú ert minn þingmaður á Austurlandi geturðu þá ekki bjargað mér um heimilisuppbótina sem ég hef verið hlunnfarinn um síðan ég varð einbúi vegna langvarandi veikinda og færveru konu minnar á öðru landshorni í 4 ár og með annað lögheimili.
Heimilisuppbótin sem ég fæ ekki er nú yfir 30 þúsundir á mánuði og munar fátækan öryrkja og einsetumann um minna þegar það vantar upp á framfærsu hans sem eru aðeins 140 þúsund á mánuði en hvað hefur þú? Þú hefur líka leiðrétt aftur í tímann kaupið þitt og annarra hálaunamanna og fyrst þú hefur bjargað ykkur svona vel getur þú þá ekki bjargað mér og öðrum öryrkjum um leiðréttingar á því sem haft hefur verið af litlu laununum okkar. SOS SOS SOS, vinsamlega hjálpaðu mér strax í neyð minni því mig vantar mikið upp á að ég fái nóga framfærslu til að halda heimili mínu og ég fæ ekki meiri aura í bönkum til að halda mér á floti,
með bestu kveðju,
einar sigfússon
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.