Sakópatar samtímans

Björn Valur Gíslason hefur messað manna hæst að undanförnu um ágæti sitt og vinstri grænnna en þeir hafa ekki bara verið einu snillingarnir við björgunarstörfin á Íslandi, það hefur samfylkingin verið líka. Þessi listahjú snilldarinnar hafa greitt sjálfum sér og öðrum hálaunamönnum alla launaskerðingu þeirra til baka aftur í tímann, af ofurlaununum þeirra en ekkert leiðrétt af hroðalegum skerðingunum sem þeir gerðu hverja oní aðra á hinum smánarlegu kjörum öryrkja og gamalmenna, sem hvergi þó áður dugðu þeim fyrir framfærslu og eru þar að auki rammsköttuð af þeim.  Ég vil meina fyrir mína hönd og annarra vandamanna: - Að það sé dásamlegt þegar bjátar á að eiga að slík valmenni og velunnara og skyldi engan undra þótt þeir hæli sér hver í kapp við annan fyrir sitt einstaka ágæti.

 

Svo deila þeir á sjálfstæðisflokkinn fyrir kreppuna og alla spillinguna en ég tel ólíklegt þótt bölvaðir hafi löngum reynst við smælingjana að sjálfstæðismenn hefðu vogað sér annan eins ,,sakópatahátt" og raun ber hér um vitni. 

 

Skyldu þessir björgunarmenn snilldarinnar, hefðu þeir verið heiðarlegir menn og jafnaðarmannaflokkar, vanda sínum vaxnir, ekki hafa leiðrétt fyrst við þá sem minnst höfðu og hýmt hafa kaldir á torgum við að betla sér mat til bjargar og mest þurftu á því að halda og látið sjálfa sig og aðra ofurlaunamenn frekar sitja á hakanum?  Varnaðarorð:  Kjósið ekki fjórflokkinn, hann hefur svikið okkur nógu oft í trúnaði.  Allir sem ekki eru fávitar eða auðtrúa kjánar ættu að geta lært af því.  Gefum honum frí!  Hann hefur fyrirgert rétti sínum til trúnaðarstarfa!  Veðjum á eitthvað annað!

 

Sakópatar samtímans 2012

Gróðahyskið ,,gradólera”,

grafir blasa öðrum hér.

Þeir sem enga ábyrgð bera

allt þeir mega leyfa sér.

 

Erindi hún átti á þig

yndis njóta að vana.

Sakópatasamfylking

svíðir öryrkjana.

 

Á hér lítill enga vernd?

Aldinn maður stundi:

- Það er raun að vera

með réttlætiskennd

og riðið eins og hundi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband