Innilegar áramótaóskir til ríkisstjórnar Jóhönnu 2012- 13

Að eiga við mannleysur er ekkert grín

ei berst mér heimilisuppbótin mín.

Megi Djöfullinn draga ykkur heim til sín

er drottnað þið hafið vesölu svín.

 

Ég tel að enginn sem getur tjáð sig á annað borð eigi að líða trúnaðarmönnum samfélagsins að níða menn niður og kvelja orðalaust eins og gert hefur verið við mig sem öryrkja og gamalmenni og sendi því ríkisstjórninni mínar innilegustu og hjartnæmustu áramótaóskir inn í framtíð þeirra.  Megi sá sem yfir henni hefur ráðið til verka og verkleysu mark á mér taka og færa þetta óbótalið frá mér, því það hefur með óheiðarleik sínum fyrirgert öllum rétti sínum til trúnaðarstarfa fyrir mig og færa það þangað sem það á frekar heima en á Alþingi!

 

Ég hef ekki getað fengið framfærslu eins og aðrir einstaklingar sem reka einir heimili sín.  Ólög í landinu segja að kvæntir og giftir eigi ekki rétt á heimilisuppbótum en ég missti konuna frá mér vegna veikinda fyrir fjórum árum og hefur hún haft annað lögheimili í öðrum landshluta í meira en þrjú ár.

 

Engan þingmann hef ég getað fengið allt kjörtímabilið til að lagfæra ólög sem stangast á við stjórnarskrá og mannréttindi í landinu og sveitarstjórn mín í Fjarðabyggð hefur neitað bakábyrgð sinni fyrir framfærslu minni, þótt svo sú ábyrgð sé og hafi verið í gildi frá aldaöðli.  Kjósið ekki fjórflokkinn!  Hann hefur allur margbrugðist þjóðinni og mun gera það áfram svo lengi sem þjóðin hefur ekki vit til að rísa gegn honum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband