2.6.2013 | 09:52
Það varð stutt í svik og flónsku framsóknarmanna 2.6.13
Nú að morgni sunnudags var endurtekið á Bylgjunni spjall við nýjan félagsmálaráðherra Eyglóu Harðardóttur. Þar kom í ljós hjá henni að loforð framsóknarmanna að best ég man allavega hjá foringjanum, fyrir kosningar ætlar hún að svíkja með hinum svívirðilegasta lúahætti á öryrkjum og öldruðum. Það er það að endurgreiða þeim aftur í tímann, eins og þingmenn gerðu við sjálfa sig og aðra hálaunamenn, skerðingar þær er gerðar voru á þeim á fyrra kjörtímabili.
Mér er nú bara spurn, hver skyldi halda í hönd og leiða um sanngirnissviðið slíkan trúnaðarfulltrúa sem á að vera fyrir alla og gera landsmönnum álíka jafnt undir höfði? Ég hygg það engan annan en djöfullinn sjálfur í eigin persónu!
Óska ég þess heitt og innilega að þessi heilaga fyrirmynd hennar og andlegur leiðtogi djöfullinn sjálfur að mér sýnist vera, af væntumþykju sinni einni hirði hana alla með húð og hári og fjarlægi hana frá mér og öðrum sem eiga um sárt að binda hennar vegna og með stóran skuldavanda að gera sem við getum aldrei borgað og eigum um sárt að binda á fleiri sviðum vegna launasviftinga stjórnmálamanna sem látin var bitna harðast á okkur sem minnst höfðum og eigum nú ekki að fá sömu bætur fyrir það og aðrir.
Flónskan vill hefna sín
Almennt er fólkið fífl og lífið óréttlátt
sem færir oss tíðum sorg og trega.
Kjósendur Fjórflokksins hugðu ei hátt
hefna vill flónska sín grimmilega.
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Frekar eiga nú LANDRÁÐAFYLKINGARMENN bágt með að þola að flokknum þeirra skyldi vera HAFNAÐ af þjóðinni. Ekki heyrðist mikið frá ykkur þegar átti að láta þjóðina greiða Ices(L)ave, ekkert fqannst ykkur að nýja lyfjafrumvarpinu, ekkert fannst ykkur athugavert við Vaðlaheiðargöng, samningana í sambandi við Bakka og svona mætti lengi telja: En nú er ríkisstjórnin búin að vera TVÆR vikur við stjórn og þið eruð strax farnir að tala um svik er ekki rétt að gefa henni einhvern tíma áður en þið farið að hrópa????
Jóhann Elíasson, 2.6.2013 kl. 12:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.