23.9.2013 | 14:07
Vesalings, vesalings fáráður, ræfill og aumingi! Opið bréf til Hönnu Birnu 23.9.2013
Góðan daginn Hanna Birna Innanríkissráðherra. Ég er margbúinn að kæra til þín á meili Alþingis og ráðuneytis þíns stjórnarskrár- og mannréttindabrot á mér og framfærslu minni án þess að þú hafir látið svo lítið sem að svara mér orði um það hvað þá að þú hafir mannskapast til að bæta úr vandamálinu.
Þetta eru mér mikil vonbrygði og mun svo vera með fleiri en mig að hafa vonast til er þú og þið sem komuð ný inn á Alþingi mynduð reyndast eitthvað betur ómennunum sem voru þar fyrir og allir brugðust mér á hinn lúalegasta hátt á síðasta þingi varðandi afkomu mína til að lifa af í landinu. Ég skora á þig að láta þegar leiðrétta siðleysið og mannréttindabrotin á mér og greiða mér með yfirdráttarvöxtum, sem ég hef orðið að borga í bönkum fyrir órétti þetta árum saman, 3 ár aftur í tímann, samkvæmt því sem hæstiréttur dæmdi þessa sömu flokka og nú stjórna til að greiða vegna siðleysis þeirra og mannréttindabrota á öryrkjum fyrir nokkrum árum síðan. Ég kveð með ljóðum um ástandið og opnu bréfi á bloggsíðu minni: neisti.blog.is
Einar Sigfússon
Hægri stjórn í burðarliðnum 7.5.13
Hægri stjórn reyndist oss vitsmunaveik
þá Ásgrímsson og Davíð óðu sinn reyk.
Sigmundur kom og til sóma reika kann
svo fremi sem íhaldið fleki ekki hann.
Val á forseta Alþingis í umræðunni 2013
Forsetann meintan Alþingis munuð þekkja þið,
þessum lyfti til hásætis dyggðin við siðleysið.
Mannréttarbrotadómana hans metur íhaldslið,
marga skal ei undra stórt þó heiðri tiltækið.
Á manndóminn sér 5.6.13
Svellandi er móðurinn
á manndóminn sér
Sigmundar og Bjarna
að svíkja loforð bindandi.
Minnið þver
þá gleypir hver,
- hákarlar fæðast syndandi.
Minnið þver þá gleypir hver
þrjótur er oss eiða sver.
Alþingisher til eymsla mer
auma hér til yndis sér.
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.