24.4.2014 | 08:40
Vinstri- grænir eru að sækja í sig veðrið 24.4.14
Eftir langvarandi linnulaus svik og öfugsnúning við stefnumál flokksins eru nú Vinstri-grænir að sækja í sig veðrið og safna orku og atkvæðum eftir mikið hrun til að komast á stjórnpalla mannlífsins á nýjan leik. Þegar Steingrímur flúði formannssæti flokksind eins og sökkvandi skip tók Katrín við því keflinu. Hún hafði fylgt Steingrímsarminum í klofningi þeirra sem höfðu sagt sig frá honum vegna óheiðarleika hans við að standa við stefnumál flokksins og fara í staðin þvert á móti þeim flestum.
Ég man ekki til þess að Katrín sú klyfi sig nokkurntíman frá þeim svikavef og spillingu stjórnmálanna en festir eru fljótir að gleyma. Í gær birtist í fréttunum úrslit könnunar um heiðarleika æðstu manna. Þar var Ólafur Ragnar forseti í 1. sæti og viti menn: Katrín yfirgnæfði þá alla aðra þingmenn í 2. sæti. Fólkið hvítþvær nú hina bersyndugu konu fyrrum í skjóli Steingríms og fylginaut og dyggum stuðningsmanni í hinum verstu óþokkabrögðum og svívirðilegustu svikamálum seinni tíma á Íslandi:
Katrín Jakobs 24.4.14
Illvirki muna oft er töf
og má best til vega.
Katrínar er kátleg gjöf
að kalla heiðarlega
- en oft þó gerist göróttir vinir
geta þeir verið skárri en hinir.
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.