22.11.2014 | 19:15
Sigmundur Davíð í bullandi kollsiglingu 22.11.14
Sigmundur ætlar samkvæmt því sem hefur horft og nú horfir til að kollsigla Framsóknarflokknum eina ferðina enn í kjölfar Halldórs heitins aumingja sem gerði það svo kirfilega á undan honum að beygja sig berrassaðann fyrir siðleysinu og spillingu og verja Sjálfstæðisflokksins í það óendanlega.
Hann var svo fylgispakur Sjálfstæðisflokknum að hann lét dæma sig og félaga sína í Framsóknarflokknum með honum fyrir siðleysi og mannréttindabrot fyrir Hæstarétti frekar en að sjá að sér og slá undan óhroðanum og spyrna við fótum. Skyldi Sigmundur stefna að því sama marki eða einhverju þvílíku samsvarandi?
Ég sé ekki eftir Framsóknarflokknum og teldi fátt betra geta skeð þjóðinni til heilla utan þess að Sjálfstæðisflokkurinn gerði það en að hann eyddist.
En mér finnst sorglegt svo vel sem Sigmundur fór af stað í pólitíkinni og skaraði að sér svo snilldarlega trúgjörnum sálum fylgjenda með vonir um bjartari framtíð fólksins að eiga með honum að hann þyrfti þá endilega eins og Halldór heitinn ræfillinn gerði fyrrum að eyðileggja allt fyrir sér aftur með því að gera siðleysi og spillingu Sjálfstæðismanna að leiðtoga lífs síns og verða talsmaður og verndari hinna dapurlegastu klaufa og afglapa.
Mér finnst sem að svo hafi verið lengi og að það mætti breytast að flest sem stjórnvöld koma nærri verði þjóðinni að meini og að nú kasti alveg tólfunum þegar forsætisráðherrann Sigmundur kennir svo mér og þér og öllum öðrum en sér sjálfum og stjórninni um ástandið þó segja megi að nokkuð sé til í því að því leiti að landsmenn hafa ítrekað konsið yfir sig sömu spilltu menn og flokka sem voru áður búnir að marg fara illa með þá.
Á veginum gráa 2014
Það syrtir í álinn og úti er friður
er illska hins stóra níðir þann smáa.
Fleirum en Sigmundi farnast hér miður
að flykkjast um Hönnu á veginum gráa.
Margra hefur marið skinn
á mjóu bökunum skakið.
- Kjósirðu fjórflokkinn
færðu hann í bakið.
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.8.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 31949
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.