2.2.2015 | 19:57
Hvað með launamálin, Haffi sendir línur
Góðan daginn! Er ekki rétt að ríkistjórnin komi að samningum við làglaunastéttir fyrst Bjarni Ben býðst til þess eins og komið hefur fram i sjónvarpi. Ég sé að það verður ekki samið um kr;680,000 làgmarkslaun að þessu sinni, þó að það sé sú upphæð sem þarf til að halda í við verðlag frà því að laun voru slitin frà verðtryggingunni fyrir einhverjum àrum síðan.
Mér finnst làgmarkið að laun upp að kr: 410,000 verði skattfrjàls, þvi að það er su upphæð sem við fólkið á lægstu launum þurfum að hafa i vasan til að framfleyta 4 manna fjölskyldu. Og eins og staðan er i dag þá neyðumst við til að vinna fleiri en eina vinnu, sem er allveg að drepa mann sem kominn er á miðjan aldur. Það var ekkert màl þegar maður var undir 30àra gamall;)
Sem sagt eins miklar launahækkanir og hægt er að nà + skattleysismörk fra Bjarna Ben, ef hann ræður ekki við þetta þa verður hann bara að segja af sér. Við þurfum ríkistjórn sem þorir að standa með fólkinu en ekki ,,Elítunni-Mafíunni-LÍÚ.
Nú er Bjarni Ben nýbúin að gefa LÍÚ MAFÍUNI rúm 300þúsund tonn af loðnu (sem hefði auðvitað átt að fara á markað og þeir sem byðu hæst að fá þennan viðbótarhvóta, þá hefðu fengist eigi minna en 5 milljarðar inn í ríkiskassan og munar nú um minna;) Fyrst hann gat gefið LIU MAFIUNNI þetta þá hlýtur hann líka að geta tryggt okkur almenningi verðtryggðar launahækkanir svo að verðbólgu Grílan borði ekki hækkunina upp áður en hún kemur til framhvæmda eins og verið hefur!
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.8.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.