Ekki blæs byrlega varðandi betri tíð alþýðu manna 9.4.15

Kjósirðu Fjórflokkinn færðu hann í bakið:

Það er sárhryggilegt eða frekara sagt hlægilegt eftir því hvernig menn taka á því að ekki sé farið fram á meira en 300 þúsund krónur í lægsta kauptexsta og það á þrem árum. Þvílík bágbilja!  Hvergi er minnst á verðtryggingu launa eins og hálaunamenn hafa og hafa haft til fjölda ára með því sem kallað er Kjaranefnd og leiðréttir kaup þeirra í takt við verðbólguna.    

Þetta þýðir væntanlega að verkalýðsforustan ætlar sér að semja upp á mikið minna, trúlega svo sem 240 til 260 þúsund sem ég tel alveg fráleitt varðandi það sem húsnæði kostar og allt annað við að framfleyta sér í landinu.

Ég vil nú helst kalla 3,5% tilboð eins og boðið er nú til hækkunar lægstu launa vera frekar sem háð og spott en nokkuð annað. Ég tel nokkuð ljóst að þessi 20% launahækkun sem stjórnvöld halda fram að læknar hafi fengið séu heinar lygar og uppspuna til að dylja sannleikann fyrir þeim sem á eftir koma með kröfur sínar.

Ég minnist fæðimanns sem kom í sjónvarpið og mér fannst mjög trúverðugur í máli sínu og sagði það sem ég hafði ímyndað mér áður vera sannleikanum nær. Hann hélt því fram að læknar hefðu fengið 50 til 70 % launahækkun. Enda sögðust þeir marg sinnum aldrei sætta sig við minna en 45% og gætum svo að því að þeir voru hálaunamenn fyrir og eru að ganga beint í sjóði almennings.

En þetta er allt í fína, fína lagi með óheilyndi og óhugnað sem fátæklingar verða að upplifa aftur og aftur af stríðsherrum stjórnmálanna. Það hefur sýnt sig ríkulega kosningar eftir kosningar að sömu fantarnir eru endurkosnir aftur og aftur til sömu trúnaðarstarfanna fyrir fólkið og klappað fyrir þeim sem verst fóru með það í von um farsæld og betri daga.

Stjórnarfar er víðast hið sama 9.4.15

Enginn sem stjórnar ber ábyrgð í reynd,

auðvaldið fátæka níðir og þrúgar.

Heimurinn er fullur af óhamingju og eymd,

áhrif virðast sömu hverrar trúar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband