Þar segir hann þetta í greinarlokin:
,, Allir ættu að vera meðvitaðir um afleiðingar þess fyrir samfélagið ef gerðir verða samningar sem leiða til víxlverkunar launa og verðlags. Aðilar vinnumarkaðarins þurfa að finna lausn sem skapar réttláta dreifingu þeirra auknu verðmæta sem eru að verða til. Ríkisstjórnin ítrekar vilja sinn til að liðka fyrir gerð slíkra samninga.
Ég sendi öllu launafólki í landinu góðar kveðjur á baráttudegi verkafólks.
Mér varð á að hugsa er ég las eitt þetta endemis blekkingarbullið enn: Skyldi Sigmundur Davíð og aðilar vinnumarkaðarins hafa verið meðvitundarlausir um afleiðingar er þeir lögðu drög að þeirri launaþróun sem að eftir myndi koma fyrir samfélagið er þeir skenktu hálaunastétt lækna 50- 70% ofan á kaupið sitt sem er staðreynd að sögn vísra manna og að muni vera 200-300 þúsund króna hækkun á launum þeirra á mánuði?
Ég get ekki stillt mig um að bæta aðeins við þessa athugasemd mína: Mikið djöfull er meirihluti þjóðarinnar heimskur að kjósa stefnumið þessara flokka eiginhagsmunahyggju og vinavæðinga yfir sig aftur og aftur hvernig sem þeir níða almúgann og hrúga undir auðvaldið á kostnað þeirra.
- Enginn skapar sig sjálfur,
sem er í heiminn borinn.
Sigmundur heill sem hálfur
hrauna oss lætur gorinn.
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.