Haffi skrifaði mér um launamál 4.5.15

Lægstu laun ættu ekki að vera nema helmingi minni en ,,hæstu laun" þ.e.a.s. Lægstu laun lækna núna eftir þeirra kjarasamninga eru kr:1200-1300,000 á mánuði. (Þeir fengu kr:200-300 þus kr hækkun pr mán) Þannig að lægstu laun ættu þa að vera með réttu kr:680,000 eða ef ríkið kæmi að samningaborðinu þa væri kr:416,000 ásættanlegt með tilkomu hækkunar personuasláttar í kr:416,000 á mán.
 
Munum það að það eru þeir lægst launuðu sem bera byrðarnar af námslánum og námi lækna og annara mentamanna þessa lands. Þannig að launamunurinn má ekki vera meiri þar sem mentamaðurinn er allt að heilli mannsævi að borga upp sín námslán. Fyrir utan það hvað kostar ríkið að hafa einn einstakling i námi i allt að tíu ár, og svo hverfur hann kanski bara til starfa erlendis?
 
Gaman að sjá hvernig læknar tala núna niður til starfsmanna spítalanna með að þeir séu að stofna lífi og heilsu almennings i lífshættu fyrir að standa í verkfalli, ég man nú ekki betur en við og þetta sama fólk hafi staðið með læknum í sinni launbaráttu, en það er ekki það sama hvað þá varðar, þá var enginn í lífshættu og þetta eina vopn þeirra til að fá sína launa greiðendur (ríkið) að samningaborðinu.

Sorglegt hvað verið er að fara fram á litla launahækkun lægstu launa, aðeins kr:300,000 á mánuði til næstu 3ára, þetta er langt undir neysluviðmiði einstaklings. Og hvaða bull er þetta til 3ára? Best að gera samning til eins árs í senn, til að sjá hvort hér hækki allt upp úr öllu valdi og ef það gerist ekki þá má framlengja samninginn til eins árs í senn, en ef allt hækkar um 10% eða meira þá þarf að endursemja.
 
Hér hefur allt hækkað um 100-150% frá hruni og 10-20% á síðustu 10 mánuðum. Svo svona launahækkun til þriggja ára er algjörlega óásættanleg og til háborinnar skammar og er ekkert annað en móðgun við almennan verkamann. Eða sættir fólk sig bara við að fá ís í eftirmat fyrir vel unnin störf?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samkvæmt síðasta kjarasamningi lækna:   kandídat 424.000.  Grunnlaun læknis 471.000.  Grunnlaun sérfræðings 694.000. Yfirlæknir eftir þriggja ára starf 900.000.

Neysluviðmiði eru meðaltal neyslu en segja ekkert um hver þörfin er.

Davíð12 (IP-tala skráð) 4.5.2015 kl. 19:01

2 identicon

Læknar horfðu bara til samnings Guðbjarts Hannessonar við þáverandi forstjóra Landspítalans sem reyndar er læknir!

var það ekki 150% ?

Grímur (IP-tala skráð) 4.5.2015 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband