Haffi skrifaði mér um launamál 5.5.15

Þessi frábæri árangur sem Árni hagfræðingur Landsbankans talaði um i Kastljósi i gærkveldi er náttúrulega algjört kjaftæði! Síðustu kjarasamningar hljóðuðu uppá kauphækkun lægstu launa kr:190 á dag. Og svona sem lítið dæmi þá hefur 1 stk grillaður kjúkklingar frá Hagkaup hækkað úr kr1198 uppí kr:1456 eða sem nemur kr:258 eða kr:68 meira en fullur vinnudagur hjá verkamanninn.

Er þetta það sem kallað er gríðarlegur kaupmáttur launa? Víglundur talaði um að ekkert nágrannalanda okkar hækkaði laun um meira en 1-2% en hvað hafa þeir gert undanfarið? Þeir hafa hækkað laun lækna og sinna sjálfra um tugir prósenta á stuttum tíma, en svo ma ekki hækka laun verkamanna nema um 1-3%.

En gleymum ekki þvi að fyrir lægstu laun i Noregi getur þu keypt 1800 litra af bensíni (þar er bensín dýrast i Evrópu) en fyrir làgmarkslaun a Íslandi aðeins 800litra (ódýrast i Evrópu) svo það er ekkert skrýtið að þar hækki laun ekki nema um örfá prósent i senn. En þar sem laun íslenskra verkamanna hafa verið skilin eftir með smánar kauphækkunum undanfarin ár, þa er tími til komin að leiðrétta þau og það STRAX!

Og hlusta a þetta bull að vextir hækki ef lágmarkslaun hækki i kr;300,000 vextir hafa verið minnst 6-8% of háir síðastliðna 12 mánuði miðað við verðbólgu, sem sýnir það að Alþingi og seðlabankastjóri hafa enga stjórn a peningamálum þrátt fyrir laga verðbólgu. Sem synir enn og aftur að þeir ráða ekkert við efnahagsmál þjóðarinnar. Við þurfum fólk við völd samfélagsins sem ráða við efnahagsmálin en ekki viðvaninga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Síðustu kjarasamningar hljóðuðu uppá hækkun dagvinnukaups lægstu launa um 20.000kr á mánuði eða um 1000kr en ekki 190kr á dag, auk þess sem orlofs og desemberuppbætur hækkuðu.

Sagt er að grillaður kjúklingur í Hagkaup hafi hækkað úr 1198kr í 1456kr. Það nemur 258kr eða um 742kr minna en hækkun dagvinnutaxta verkamanns. Hagur verkamannsins hefur því batnað um rúmlega 120 kjúklinga á ári.

Þú ert gjarn á að fara frjálslega með tölur. Flest er hægt að finna á netinu og það er því óþarfi að vera með ágiskanir og skáldskap.

Davíð12 (IP-tala skráð) 5.5.2015 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 31934

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband