Úlfur í sauðargæru - Haffi skrifar mér m.a. 7.5.15

Folk skal passa sig a Gylfa Arnbjörssyni. Hann vinnur alltaf með atvinnurekendum en ekki þvi fólki sem hann a að vinna fyrir. Þetta er ekkert annað en ,,úlfur í sauðaskinni"
 
Líkja má honum við ríkisstjórnina, lofar öllu fögru en svíkur alla sína menn...
 

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, brást illa við á Facebook-síðu sinni vegna ræðu Gylfa Arnbjörnssonar 1. maí síðastliðinn. Gylfi, forseti ASÍ, lagði til í ræðu sinni að stéttarfélög Íslands myndu sameina krafta sína fyrir bættum kjörum félagsmanna. Að sögn Gylfa myndi sameining 110 þúsund félagsmanna hámarka þrýsting á atvinnurekendur.

„Bara þannig að launafólk átti sig á því hvað forsetinn er að biðja um þá er það að hann fái að stýra og leiða þessar kjaraviðræður við Samtök atvinnulífsins. Ekki gleyma því að Samtök atvinnulífsins eru búin að vera að kalla eftir því opinberlega að ASÍ sjái um að leiða þessar kjaraviðræður sem nú eru í gangi. Það hefur svo sem ekki komið mér á óvart því að sjálfsögðu vilja menn taka aftur upp þráðinn í samræmdu láglaunastefnunni,“ skrifaði Vilhjálmur á Facebook-síðu sína.

Samræmd láglaunastefna

Vilhjálmur segir enn fremur að Gylfi sé einungis að þvælast fyrir meðan aðrir reyna að landa viðunandi samningi fyrir verkafólk.

„Gylfi nei takk, ekki samræmda láglaunastefnu aftur og ég er bara með eina ósk ekki vera að þvælast fyrir“

„Skildi forseti ASÍ vilja taka aftur upp samræmdu láglaunastefnuna sem hann stýrði bæði í kjarasamningunum 2011 og svo aftur í hinum margfræga 2,8% samningi 2013? Takið eftir samningarnir 2011 og 2013 voru undir einum fána 110 þúsund félagsmanna ASÍ og það gaf alls ekki góða raun. Gylfi nei takk, ekki samræmda láglaunastefnu aftur og ég er bara með eina ósk, ekki vera að þvælast fyrir á meðan við eru að reyna að landa viðunandi samningi fyrir verkafólk,“ skrifar Vilhjálmur.

Skaut á Eflingu

Á dögunum deildi Vilhjálmur við formann Eflingar, Sigurð Bessason, en gefið var í skyn á heimasíðu Eflingar að Vilhjálmur hefði ekki gefið rétta mynd af atburðarásinni bak við hækkun bónusa starfsfólks HB Granda. Vilhjálmur sagði það rangt,  VA hefði þvert á móti klárað málið fyrir Eflingu. „Efling er í raun og veru að segja að þeir hafi átt fund með Granda á föstudaginn þar sem viðrað var að það þyrfti að gera eitthvað. Ég á fundi út og suður, þar sem það er talað um að það þurfi að hækka laun, en það þarf síðan að gera hlutina. Það sem gerist í þessu samhengi er að forstjóri fyrirtækisins hefur samband við mig og trúnaðarmenn. Við fundum á mánudegi og hann spyr hvaða laun ég sjái til lausnar á því að lagfæra laun þessa fólks. Ég sagði við hann: „Heyrðu ég skal bara senda þér tillögu, drög að nýjum bónussamning“. Ég sendi honum samninginn, þannig að Verkalýðsfélag Akraness vann þennan bónussamning frá a til ö. Það er ekki nóg að tala, það þarf að vinna líka,“ sagði Vilhjálmur þá. 

Copy fra stundin.is 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband