Afboðaðar eru hvalveiðar við Ísland 27.2.16

Hvalur hf afboðar nú hvalveiðar vegna erfiðleika við sölu afurðanna. Ég tel skandall að hætta alveg hvalveiðum. Mér þykir súr hvalur sérlega góður.  Vandist honum á yngri árum þegar hann var á því verði að fólk gat keypt hann sér til fylli eins og annan mat.  Á síðari árum hefur hann svo sjaldan að hann hefur fengist verið nánast sem munaðarvara verðsins vegna sem og annar hvalur innanlands.

Skandall segi ég að veiða hann ekki í þeim mæli sem dygði fyrir innanlandsmarkað og hafa hann þar á því verði að hagstæðara væri að éta hann en kjúklinga og svín sem lifa að mestu eða öllu leiti á innfluttu fóðri.

Það er talið að hver hvalur éti fisk á miðunum ámóta og það sem einn og hálfur togari veiðir yfir árið. Ef hvalur er veiddur skulum við því ætla að við getum veitt því magni meira sem því nemur af fiski.

Ég legg því til að þjóðarbúið noti sér auknar tekjur af því til rækilegrar niðurgreiðslu á hvalafurðum innanlands og mætti þar og þannig stórbæta afkomu heimilanna til að framfleyta sér í dýrtíðinni á hollum og góðum mat...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband