Garmurinn 26.4.22

 
Skúli Hjaltason ku hafa
komið í Norðfjörð
sem margt fleira gott vestan
af landi.
Þar voru fyrir tveir vestfirskir
rótgrónir úrvalsbændur.
Ég hef oft heyrt í orðum haft
að austrið og vestrið
hafi þótt blandast vel saman.
 
- Máltæki segir: - Glöggt er
gests augað!
Við komu Skúla bar nokkuð
á að hann skopaðist að
þeim ótrúlega vitleysisgangi
og persónudýrkunum þeim
sem sálir sveitunganna
hrærðust í og dönsuðu eftir.
Það var auðvitað það
sem allsekki mátti ske eða
líðast í því kompaníi
sem að hann veslaðist inni
og mun honum hafa verið
gerð skír grein fyrir því.
 
Í framhaldinu var sem hann
skipti um ham
og yrði hverjum ættaróvini
tengdafólksins til bölvunar
og leiðinda eftir það.
Þegar kominn var á friður
í minni sveit eftir mikil átök
og illindi í áraraðir, hitti ég
aldrei svo Skúla fyrir
að hann viki ei að mér með
háðsyrðum og skætingi
og alveg ótrúlegri auðsýndri
fyrirlitningu.
 
Hann var sá eini í Norðfirði
öllum sem virtist ekki sætta
sig við að hafa orðið að láta
undan síga er skauðaforingi
illindanna féll í valinn
sem af slysförum væri,
þótt svo miðlar hafi sagt mér
það hafa verið neyðarúrræði
almættisins því að með hann
ofar moldu hefði aldrei getað
orðið friðvænlegra á svæðinu.
En ég frábið mér algjörlega
það sem margir hafa mér
ætlaðað að hafa stjórnað í
að svo væri gert.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 31943

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband