24.5.2012 | 06:58
Frjálsar ástir
Nú vil ég ykkur sögu segja
um einstök sómahjón
er hér kalla Gunnu og Jón
þau þykja frekar frjáls í háttum
um smámunasemi
þau eru ekki að þrátt´ um
hún stundar örlitla aukavinnu
hann hefur líka sína sinnu
það er þó ekki að nokkru marki
að þau hittist í því harki
hans er yndið að mega velja
og fá að kaupa
það sem hún er að selja.
Bloggar | Breytt 25.5.2012 kl. 05:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2012 | 05:35
Athyglisbrestur
það eru flestir snillingar.
Þeir njóta ekki alltaf skilnings
á uppvaxtarárunum
og verða títt fyrir erfiðleikum
af aðkasti og einelti.
Í skólanum eru þeir skammaðir
fyrir að sitja ei kjurrir og þegja
því áhuginn liggur annarstaðar
en á skólabókunum.
Verið góð við erfiðu börnin
þau verða oft frumkvöðlar
vegna orku og hugmyndaauðgi.
Þið vitið ei hvenær sá dagur rís
að þið þurfið að leita til þeirra
vegna starfs eða ráða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2012 | 15:38
Ást og mistök 14.5.12
- Hamingjusamar fjölskyldur
eru allar eins
óhamingjusamar fjölskyldur
hver á sinn hátt
af hverjum einstaklingnum
oft segir fátt.
- Það gera allir mistök
eins þeir sem við elskum
ástin er tolluð í hverri þraut
það þarf líka vilja og styrk
þegar allt gengur betur
til að halda ballansinum
á réttri braut.
Bloggar | Breytt 16.5.2012 kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2012 | 06:32
Um þjóðfélagið 2012
Að rétta af þjóðlífið sækist mjög seint
af syndum hér fátt er talið.
Harðvítugt glæpalið ljóslega og leynt
hefur logið og stolið og falið.
Almúginn segir, ei þingmönnum þakkið
þeir hafa ekki unnið mér eða þér
því þar hefur stöðugt allt helvítið pakkið
verið að hlaða undir rassana á sér.
Aumingjar hafa á ýmsum stöðum setu
og ei gott að vita hver reynist skást.
Þegar menn hafa ekki þroska eða getu
þýðir víst lítið um það að fást.
Ei leyfist öryrkja að seðja sinn svang
af sóðum er jafnóðum rúinn
og heimskan verður að hafa sinn gang
hún er af mönnum til búin.
Marga vantar mat að borða
mega þola skort og pín.
Lengi man til ,,Íhalds” orða:
,,Þeir ættu bara að skammast sín”!
Það er ei gaman í þurrum hópi
þjást og finna til
ætti ég bara ögn af dópi
algleymis nyti um stundarbil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2012 | 05:45
Óttinn 2002
Ótti í dölum sem uppi í heiðum
óttast nú fólkið skuggana sína
óttinn hamlar öllum leiðum
óttast menn svo að þeir láta sig pína.
Þrælablóð í þeirra æðum rennur
sem þora engu eða reyna að verjast.
Víkingarnir þoldu vígasennur
og voru alltaf til í það að berjast.
Ætla ég hyggindin öll sem best
örlögin ráða en lífsins er glíma.
Úr vesöldinni þá ræðst fyrir rest
reynslan mun kenna börnum síns tíma.
En börnin þurfa að öðlast frið til að fæðast.
Fleiri eyða mannlíf heldur en það bæta.
Embættismenn nú ekkert kunna að hræðast.
Elska bara vellystingar og peningana mæta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2012 | 06:24
Ég hef marga hildi háð 2002
Ég hef marga hildi háð
og hef þar notast við ýmis ráð
ætíð þó seinn til verri verka.
Mönnum ég nudda uppúr sínum saur
sem sé ég með hvolp eða kattargaur
það virkar eins á stórbokkann sterka.
Allir þegja svo þunnu hljóði
þegar ég rita um siðleysið!
Það ástandið er ekki beysið
og endalaust vaðið í blóði
menn eru samdauna glæpunum góði!
Ekki er ég skáld en yrki þó samt
ýmsir telja það sé nokkuð rammt
og ansi er mér nú trauðlega tamt
textann að láta mér hlýða.
Oft hrýt ég milli hríða!!!
Líkar fáum við ljóðin mín
láta mig vinir heyra:
,,Fyrir neðan virðing´ að fjalla um svín
fallegt skalt yrkja því meira”!
Allt er nú vandanum vafið
virðist þar hvað sem annað.
Illt telst sem best upp hafið
allt hið góða lokað og bannað.
Hryðjuverkin og hroðaleg morð
henda sig oft á stríðsglæpatímum.
Hugtökin spanna ekki þau orð
öryrkjans nú í mannréttarglímum.
Með ofurhuga og orðanna ræpum
andlega sjúkir í metorð og völd
samtíningi af siðleysi og glæpum
sullað er í ólög langt fram á kvöld.
Æran er fljót að fjúka
fáir sjá við lífsins táli.
Oft sem best illu af að ljúka
eða þá sem skipti engu máli.
Samviskan týnist, óttinn í augum
Alþingi kennir nútímans svipinn
en aðrir geta sér tapað á taugum
takist þeim ekki að halda í gripinn.
- Sjaldan er fíflum framaskortur,
fara hlaupandi upp stiganna þrep.
Frá þeim kreistist ört lítill ”lortur,”
lemjast svo í forinni undir drep.
- Marga hefur veröld villt,
villtir þeir kenna enga slóða.
Foröðin geta ferðunum spillt
og forlögin gert úr þeim sóða.
Alltaf reynast uslagjöldin
erfið mest bóta sé þörf.
Ekkert ég spara á spjöldin
spyrjist í aldanna hvöf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2012 | 10:05
Læknirinn og ríkisvaldið
Læknirinn drepur og læknirinn mer,
ljóst þó ekki allir haldnir glæpasinnu
en Landlæknirinn segir við lækna ef svo er:
,,Leita skulið ykkur þá að annarri vinnu”!
Ríkisstjórnin læknunum ræður með sönnum
til rangvega mútum er beitt hverja stund.
Hennar dýrustu ráð eru að dytta að mönnum
drápshendur verði þeim lausar um stund.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2012 | 10:04
Drápseðlið
Minkurinn drepur af ánægjunni
af því að drepa
og dregur saman hræin.
Maðurinn myrðir fyrir ánægjuna
af peningunum
sem mætastur hann virðir og þráir
oft eingöngu
þótt beri hann engann til þín kala
er hann alltaf til í slaginn
en hann býður kúnunum yfirleitt
góðan daginn.
Þar liggur munurinn á minknum
og manninum
að minkurinn kann ekki að tala!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2012 | 17:54
Að horfa á heiminn
Það horfir hver á heiminn
út frá sjálfum sér
og þess vegna eiga margir
erfitt með að skilja þá
sem sjá hann
frá öðrum bæjardyrum.
Hver skilur öryrkjann
sem hangir á horriminni
hrjáður og smáður
og gamalmennið
sem berst í bökkum
vegna þess að auðvaldið
gramsar til sín
megininu af kökunni
sem allir eiga að nærast á?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2012 | 16:40
Þjóðarráðið
Vinstristjórnin völt nú riðar
vandamál ef félli slík.
Óma raddir ásta og friðar
er ég tala um pólitík.
Þjóðarráðið ljúft oss leiðir
lætur ríka dýfa í sig.
Aumingja svo aðra meiðir
illa ríður þeim á slig.
Oft má njóta á ýmsa vegu
ei þótt níði ráðslagið
en örlögin þessi ógurlegu
auka ei á hreinlætið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 4068
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar





