Heimsins plott 14.7.12

Við horfum á heimsins plott,

- hver lætur mata sig

að vana.

Mikið djöfull er daman flott,

- talaðu vel um mig

við hana.


Níðingar 12.7.12

Níðingarnir níða flest

nauð er slíkum búa.

Ýmislegt þá getur gerst

sem gott er ekki að trúa.

Ég trúi á hið talaða orð

og tauta ei allt í bringu

ekkert dugir á annað borð

við allslags vitfirringu.


Vætuleysi 10.7.12

Nú er sól og nætur bjartar,

næstum jörðin skrílaþurr.

Veikur akur vandann kvartar,

um vætuleysið heyrist kurr.


Til málafærslumannsins 3.7.12

Hefurðu lesið ljóðið dagsins

og litið ögn til sólarlagsins?

Hefurðu um málin ritað ramma,

reynt að bera högg að kjamma?

Ef ekki máttu auka sporið

eðlisþrekið er þér borið!

Vona þú kunnir ráð við kvabbi,

kær kveðja, pabbi.


Sveitarstjórnin í Fjarðabyggð 3.7.12

Stjórnarskrá og mannrétt þeir virða ei vitfirringar

á veikum sem öldruðum snauðum.

Fjarðabyggð stjórna enn gjörspilltir geðsjúklingar

er ganga vilja að mönnum dauðum.

Því gef ég þeim heldur hastan minn róm,

hver er ekki lúbarinn leiður?

- Þeir hafa vaðið mig yfir á skítugum skóm

og skeytt hvorki um skömm né heiður!


Sjálfan sig hver má þola

Það er sunnudagur og sólin skín
sjálfan sig hver má þola.
Dásamlegt væri að dreypa í vín
á dýrðlega glæstum fola.


Hofróðuháttur

Í kynferðisstríði er mikill máttur,

marðar eru sálir í lengd og í bráð.

Aldrei mér líkaði hofróðuháttur,

hver hefur ríkara líf okkar smáð?


Klæðskiptingurinn

Ein daman í skólanum

var dýrðlega fögur

en dálítið grófar þar

fóru af því sögur

að hún klæðskiptingur væri

og kæmi ei til greina,

kássast upp á hana

og við hana að reyna.

 

En þar var einn strákurinn

stæltur mjög til ásta,

stöðugt á því brýndur

að nú væri það skársta,

hann biði henni á rúntinn

eitthvað upp í sveit

og æsti hana í faðmlög

og hefði að þessu leit.

 

Og stúlkan þáði boðið

en beggja var óljós hyggja,

brunuðu akra stóra

og farið var að skyggja.

Hvert framhald myndi leiða

var nú engin vissa

en varð þá dömu að orði:

Æ, ég þarf að pissa!

 

Hún stökk síðan á brautu

en strákur var líka sprækur,

stuttu á eftir læddist

er hún skellti sér á hækjur

og það fór sem hann grunaði,

þar sá hann göndul lafa

og greipar um hann spennti:

Já, þetta skaltu hafa!

 

En dindillinn slitnaði óvart af

í greipar sér tók hann líta,

- þú hefðir nú getað sagt mér það

þú þyrftir að fara að skíta!


Raunasaga

Óhöppin ýmsa naga,

yndið er hverfult

þótt belgist af þrá.

Strákur það gerði

við stúlku út í Haga

og stautinum tókst ei

úr dömunni að ná.

Stúlkan fékk krampa

og stundi við þá

og stamaði orðum

sem illa hann skildi.

Hún þruglaði þetta

og því ekki gleym:

- Þú hefðir átt gera

það sem ég vildi,

taka mig aftan frá

þá hefðum við

getað gengið heim!


Frjálsar ástir

Nú vil ég ykkur sögu segja

um einstök sómahjón

er hér kalla Gunnu og Jón

þau þykja frekar frjáls í háttum

um smámunasemi

þau eru ekki að þrátt´ um

hún stundar örlitla aukavinnu

hann hefur líka sína sinnu

það er þó ekki að nokkru marki

að þau hittist í því harki

hans er yndið að mega velja

og fá að kaupa

það sem hún er að selja.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband