8.12.2017 | 09:45
Stjórnarskrá Íslands býður upp á trúfrelsi 8.12.17
Vinur minn sendi mér morgunandakt. Hann kveður Loga Einarsson hafa kostað Akureyrabæ 6.500 milljónir með því að gagnrýna og saksækja Snorra í Betel fyrir trúarskoðanir sínar, sem ég sé ekki að hafi káfað neitt upp á hann.
Nú er þessi maður orðinn formaður Samfylkingarinnar. Átti hann ekki að vita að hann væri að gera vitleysu með þessari gagnrýni og hver tapar mest á þessu og borgar brúsann? Það eru ekki Logi, það eru auðvitað almennir borgarar og maðurinn sem er hrakinn úr vinnu sinni saklaus af ótrúlegu siðleysi og fantaskap og eru ekki dæmdar nema smánarlegustu skaðabætur fyrir ofsóknirnar af dómstólum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2017 | 02:06
Ein sturlunin enn 4.12.17
Eftir hrunið var Gylfi Arnbjörnsson formaður ASÍ í þeirri aðstöðu að fá því ráðið hvort verðtrygging af húsnæðislánum yrði afnumin eður ei. Hann valdi að hafa hana áfram. Sagt var að bankarnir hefðu grætt á því 3-4 hundruð milljarða.
Ég hef oft sett fram spurningu um hversu fólk gæti ímyndað sér að hann hafi fengið mikið mútufé að launum frá bönkunum, eða afhverju réðist hann svo harkalega á almannahagsmuni? Enn eru stjórnvöld við sama heygarðshornið:
Enn er ein ríkisstjórnin að ríða hér á vað
ráðin í að bæta allt er hægt er að laga.
Verðtrygging húsalána stendur þó í stað,
sturlun fleiri trúi ég mega okkur plaga.
Bloggar | Breytt 5.12.2017 kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2017 | 06:24
Komin á koppinn 1.12.17
Nú er komið vel í ljós
það sem ljóslegast mátti vera
að lítið myndu fátækir
úr stjórnarmyndun bera
og sýnist mér með Katrínu
sem Jón heitinn ræfilinn séra
að hellst í embættin troði sér
fólk sem best væri að skera.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2017 | 05:53
Stjórnarmyndun 30.11.17
Mér finnst það ljóst í spilunum að byrgðunum á rekstri þjóðfélagsins verði ekki jafnað frekar en verið hefur, því ekki láta hægri menn sauma að auðvaldsstéttinni með meiri álögum og öðruvísi er ekki hægt að reisa ónóga framfærslu fátækra.
Vor gæfuvegur sýnist svagur,
sveiflast lán á mannahag.
Mín er trú að myrkur dagur
muni kallast sá í dag,
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2017 | 06:06
Bílakaupin 30.3.17
Ungur maður auglýsti bíl,
orðaði að lítið væri riðið
er hann hefði að geyma.
Glaður birtist kaupandi
sem gera vildi díl.
Girnileg þótti honum frúin
sem að ein var heima.
Hún sýndi honum gripinn
sem og vera ber.
Hann sagði hann er góður
svona handa mér
en veistu nokkuð annars
hvar riðið í honum er?
Undrandi var á svipinn
er ansa tók hún því
- það er nú aðallega
aftursætinu í.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2017 | 04:05
Biðstjórnin 27.11.17
Biðstjórnin mun látlausan líða farinn veg
lýs að reyna tína burtu hvurs úr annars hárum.
Hún til betri verkanna verður stöð og treg
og vija ei til að lækna mein eða gera að sárum..
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2017 | 02:44
Kostur ferðamannsins 27.11.17
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2017 | 11:23
Grín 27.11.17
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2017 | 03:54
Þynging en ekki þungun 27.11.17
Það er gott að lifa ef líf er ei hart
og list best að vera ekki hnundinn.
Er Sigga mín kemur sofið er vart,
spilamennsku magnast þá stundin
en mér þykir megrunarútlitið svart,
megi frekar aukast nokkuð pundin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2017 | 04:48
Fjöðmiðlakarp 26.11.11
Er ungar stúlkur í lífsins leit
leggjast með eldri mönnum
heitir það eins og alþjóð veit
ekki nauðgun með sönnum
en komist fjölmiðlakarp á stjá
krassar meira að segja svo frá.
Þetta heyrist svo dag eftir dag,
skyldi lygi ei skemmtilegt fag?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar