Gleðiganga hinsegindaga er í dag 8.8.15

Ísdrottningin

Ísdrottningin sagt er með sönnum,

Sveinka Jóns tálar á dró.

Er mjög eftirsótt af karlmönnum

en engan vill hún og þó.

 

Lespían 

Ef ertu svo heppin að vera kona

er æskir þér klifra á topp,

uppgefin karlmanna ásta og vona,

sey lesbian is the only way up!

Stökktu þótt stynji einhver bit,

- fake it till you make it!


Vægir kostir 27.7.15

Fávitar sem aðrir hverjir á öðrum riðla,

algengast að vægir kostir mestan fjölgi sér.

Þeir hafa sjaldan frá sér miklu að miðla

og margur er sá skóli sem vanda af því ber.


Sannleikskorn 27.7.15

Þeir sem sækja fastast

þeir fá tíðast mest

það er goggunarröðin hin sterka.

Þeir sem segja mikið

og fá það blöð á fest

þeir eru sannleikskorn framtíðar

hvort sem það er satt eða logið.

 

Í minningargreinum segja menn

yfirleitt allt gott

upp er dregin glansmynd

um hvað eitt helst til fagurt.

Mín skrif fjalla um meiri reynd

þar margt er fúlt og gagurt

þau eru meira sem lífið sjálft,

bæði feitt og magurt.


Fimmta ,,truntu"gangan í Rvík 25.7.15

Tuttugu og fimm þúsund þramma ku nú

í þóttanum druslurnar torgin og stræti!

Þar er sögð á ferðinni mörg mæðan sú

að makar vilji sýna þeim kynferðislæti!

Alvörukonan heldur sig heima að punta,

hún hefur ekki nauð af ástum og lunta,

- klár sem eigi er reitt er kallaður trunta!

Ekki þýðir að segja: Þetta eru hálfvitar,

- það kemur allt böl ofan frá og smitar!


Fátækt á Íslandi - Haffi sendi mér línur 24.7.15

Talað er um að nú hafi aldrei fleiri þurft aðstoð hér á landi vegna fátæktar. Væri nú ekki nær að nota þessar kr:200,000,000.- já þú heyrðir rétt! tvöhundruðmilljónir króna sem ríkistjórnin ætlar að eyða í 25 manns sem eru að koma hingað til lands sem flóttamenn. Er ekki nær að laga til í eigin garði áður en notuð er önnur eins ,,sýndarmennska"?

Ég er alls ekkert á móti því að hjálpa flóttafólki, en þurfum við ekki að byrja hjá okkur sjálfum? Ef ég á ekki peninga í afgang eftir nauðsynjar hvort heldur sem er til heimilis eða fyrirtækis, þá get ég ekki gefið peninga, eða er það svo?? Þá hef ég ekki lært neitt á minni skólagöngu..


Troðið á fötluðum 24.7.15

Íslendingar fullgilda ekki

alheimssamning þann

að hér ríki mannréttindi

fyrir hvern fatlaðan.

Valdníðslan öll óskapleg

ber að sama brunni:

Troða smáa um heljarveg

hver sem betur kunni.

 

Oft til verka er svellur móður

margt vill fara í hengla

eða ræmur!

- Enginn er algóður,

enginn alslæmur

en ýmis helst til hvorutveggja

dræmur,

vart finnst nokkur ráðamaður

sjálfum sér samkvæmur! 


Ofbeldi 19.7.15

Ofbeldið ber vald í hverja hræringu,

helst við ráð er mótlætið ei spara.

Auðveldast að kæfa það í fæðingu,

- því annars magnast það bara.


Hver er munurinn á kúki og skít? Svar: Herslumunurinn!

Hvað er líkt með snilld? 

Einn kann virðast villingur

og vitleysa hans bölvað tað.

Eins hljómar orðasnillingur

er erfitt er að ná upp í það.

 

Af aurum api 10.7.15

Það er mörgum mjög að skapi

magna upp verð og reita,

- margur verður af aurum api,

ekki er því að neita.

 

Bæjarstjórnarfulltrúinn 24.4.15

Þótt væði í störfin var sjaldan langt,

vesalmennska hans fengi að líðast

en sá ekkert gerir, gerir ekkert rangt

og görmum er oft strokið blíðast.

 

Lúsamiðlingar og lyddumenni 11.7.15

Það smakkast illa lúsamiðlingar af lyngi,

líki helst sem falskri bjöllu í klingi.

Menn gjamma greitt

en gera ekki neitt,

- það eru margir Jónbirnir á þingi!


Húmor og glens 10.7.15

Húmor við suma skal helst fara lágt

þótt hafi glens mest við alla.

- Það eiga svo margir andlega bágt

að orðum við þá má ei halla.


Fyrirmenni og fjörráðendur 29.6.15

Samfylking hefur þjösnast hér þjóðinni dýr

það er í svo mörgu sem henni er illa farið.

Að kratar séu úrhrök er ekki vegur nýr

með ójöfnuði hafa löngum þjóð vora barið.

 

Vinstri stjórn var gáskagleið

en glötuð öllum mergi.

Mun hún hafa markað sér leið

milli einskis og hvergi.

 

Vanda skapaði vitfirring,

er virðing enga bærði.

Marði snauða sóðaþing

en sjálfa sig vel nærði.

 

Sjálfstæðisflokkurinn

er Satans handbendi

siðleysi og misskipting

sem leiki hann kenndi.

 

Fjórflokkurinn nú allur

hefur farið hans slóð

fátæklingum landsins

að sjúga stöðugt blóð.

 

Íhaldsstjórn fór ögn í frí

en aftur hefur gengið.

Við skulum líta aðeins í

örvitanna mengið:

 

Svíðingar samtímans 2003

Hvar sem framsóknarmenn fara saman

fjandinn sjálfur er laus.

Hann kennir þeim kolsvartan draman

kaldari en sá sem fraus.

 

Hver fátækur maður er fleginn sem hundur

því forustan matar heilt auðmannalið.

Þeir eru sem rándýr að rífa þá sundur

en reynast bara hræætur að troða út sinn kvið.

                          

,,Fólk í fyrirrúmi”!!!

var Framsóknar slagorð um sinn

en börðust sem bófar í húmi

við hin bágstöddu öryrkjaskinn.

                             

Dæmdir þeir svo hristu bara hausa

og héldu áfram sinni níðverkafjöld.

Sæmir ei vorri þjóð að sjá fanta ganga lausa

er Sogn ættu að gista bak við rimla og tjöld.

 

Af verkum sínum þessi greyin þekki

sem þvílíka brjálæðinga og svín.

Þeir sýna bæði siðleysi og hrekki

og sæmd þeirra og æra er sem fúlasta grín.

 

Að öllu svo brosir Halldór Ásgrímskundur

með óþokkahópinn fram á kosninganna svið.

Ég brosað gæti líka við að búta þá sundur

og brjálhausana þeirra setja þjóirnar við.

 

Það er mikið afstætt að vera aumingi og svín.

Ég er að tala um Ríkisstjórn en ekki með grín.

Þar eitt er alveg víst

og um það málið snýst,

að þar hafa grey ei getað lært að skammast sín.

 

Nú vitið þið hvers vegna öryrkinn er svo andsnúinn að róta.

En orð hans munu að sjálfsögðu, sem vindur um eyru þjóta.

Ef þeir vitskertustu á landinu, fara með völd heillar þjóðar.

Verð ég bara að segja það:  Að horfurnar eru ekkert góðar.

Og hópur valdra aumingja krjúpa síðan köppunum til fóta.

Og keppast við að segja já, við hverja lagasetninguna ljóta.

Og ráðherrana undrar svo, þegar fólkið á forsetann hljóðar.

Fjandinn taki þvílíkt rusl, sem best væri að hengja og skjóta.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband