23.9.2018 | 09:20
Óþjálir ljáir í þúfum 23.9.18
Þeir sem stjórna umræðu morgunútvarpsins hafa alltaf verið með einhverja óþjála fanta, sem andmælendur á almennri og alþýðlegri umræðu að mér hefur fundist í langan tíma.
Til fjölda ára var það Pétur Blöndal og síðan tók við annar ekki skárri, Brynjar Níelsson. Mér hefur oft verið hugsað til þess að á tímum boða og banna, hvers vegna skuli ekki lokað á málafylgjumenn sem þessa langt úr takti við allt eðlilegt að mínu mati og flestum hlustendum til sannrar armæðu og leiðinda.
En það má kannski afsaka þá með það í huga að málflutningurinn sé bara ófalinn sannleikur stærsta stjórnmálafloos landsins varðandi áníðslu og undirtroðning þeirra landsmanna sem bágast eiga lífið í landinu vegna ójafnaðar og fátæktar.
- Sá sem ekki segir neitt
segir ekkert vitlaust
en fleirum trúi ég hamsi í heitt
háa þótt ei kveði raust.
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.