18.3.2013 | 07:31
Látum hvína
Á því flest ei virðist vörn,
vandi er test þá ríður.
Ylmar best úr eigin görn,
öðrum gest það síður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2013 | 13:22
Örlögin ráða 15.3.13
Örlögin líf okkar hræra,
okkur á höndum bera.
Þeir eldast er andann bæra
og ekkert við að gera.
Bloggar | Breytt 22.3.2013 kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2013 | 08:14
Nýr Páfi 13.3.13
Í páfagarði er punktur og komma,
punga ei heimska láta vígja.
Eyða ei fóstrum og ekki að homma,
æptur er löstur Páfans nýja.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2013 | 14:23
Aðhald og smekkur 13.3.13
Engu lítur auðvald
undantekið fáum.
Allir þurfa aðhald
oft á vegi gráum.
Maður smekks á músik er,
munaður sá er blíður.
Oft á kostum andinn fer
er yndið fastan ríður.Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2013 | 02:15
Fulltrúar fátæklinganna 12.3.13
Á eina lund þar allir prumpa,
- ylmar best úr eigin görn.
Ei er sjón að glápa í gumpa,
gerist mún oss eina vörn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2013 | 08:14
Gefið frat í Fjórflokkinn 11.3.13
Illmennskan á okkur fær,
undan margir brotna.
Óbermin hér ýmsum kær,
eiga vini rotna.
Glæpahyski með glæpaþrá
gera oss dapurt sviðið.
Komið Fjórflokknum frá,
flengið djöflaliðið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2013 | 01:20
Búið og gert 11.3.13
Við gerum mistök,
- lánið er valt,
sem gerir líf jafnvel
einskisvert.
Við getum ei alltaf
bætt fyrir allt,
stundum er það
búið og gert.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2013 | 19:53
Á ég að sýna þér það á þér strássi, skrifað 10.3.2013
Ég gerði þetta söguuppkast í dag um viðskipti f.v. sveitunga minna sem voru mér mikð eldri og eru látnir:
Kalli frændi minn bjó á næsta bæ fyrir utan mig í Efri-Skálateigi 1. Hann hélt vel utan um sitt, átti margt góðra hluta og gekk fast eftir því að sér væri skilað því sem nágrannarnir sóttu til hans og það áður en þeir fengu fleira að láni. Heyrði ég honum bölvað hroðalega fyrir þessa ósvífni sína af þeim sem engu skiluðu en vildu bara endalaust fá lánað meira og meira. Sögðu þeir sem hlut áttu þar að máli að hann körónaði svo skömm sína með því að segja blákalt upp í opið geðið á þeim að þeir skiluðu aldrei neinu. Þetta efni hef ég tekið saman í eina setningu sem er svona: - Fáum geðjast að sannleikanum,þegar hann hentar þeim ekki. Þetta kemur nú reyndar lítið við sögunni sem ég ætla að segja.
Júlíus Þórðarson á Skorrastað sagði mér frá fyrstu kynnum sínum við Kalla frænda minn og voru þau honum mjög minnisstæð. Hann var þá nýlega kominn í fjörðinn og Guðjón tengdafaðir hans sendi hann til að fá lánað mikið þarfaþing hjá Kalla sem var nasatöng í nautgripi. Það átti að fara að lóga stóru nauti á Skorrastað muni ég rétt. Þessi töng var þannig úbúin að það var sundurtekinn hringur með hnúða á hvorum enda öðru megin. Þetta var sett í nasir nautanna en í hinn endann var hann með tveim álmum með hjöru þannig að hægt var að opna klemmuna en þar fyrir ofan var teinn sem hægt var að þrýsta gorminum uppá sem var annars utan um álmurnar og hélt klemmunni saman í nösum nautanna. Svo var að auki hringur í endanum á teininun fyrir spotta til að teyma nautið með.
Kalli frændi minn varð fljótt og vel við þessarri beiðni og sótti klemmuna og kom með hana út í dyrnar en Júlíus hafði beðið á hlaðinu. Klemman var mjög sjaldgæft apparat og hef ég ekki séð annað slíkt svo ég muni og Júlíus starði á undrið og spurði hvernig ætti eiginlega að nota þetta verkfæri. Kalli frændi minn leysti úr þeirri spurningu á sinn einstaklega einlæga og hugljúfa hátt og dró þegar upp gorminn og glennti út klemmuna, stökk svo út úr dyrunum og óð með klemmuna upp að nösunum á Júlíusi um leið og hann mælti: ,,Á ég að sýna þér það á þér strássi! Júlíusi varð mikið um og hröklaðist undan klemmunni aftur á bak og spurði ekki meir en lét fætur forða sér hið fyrsta frá kynnum sínum við þennan nýja nágranna sinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2013 | 23:51
Ég efa það ekki 9.3.13
Umhverfið er svo óvinveitt
að urmull af sálum bresta.
Ég trúi að sé í Helvíti heitt
og heimtur þar með besta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2013 | 16:54
Á gönguför 2.3.13
Gaman er úti á gönguför,
góður er fótur nettur,
gott að vera ungur og ör
í anda hress og léttur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar