5.1.2013 | 01:48
Ástarsorg 4.1.13
Við móður sína mælt´ún
maðurinn er svín,
mikið ég sparka honum þyrði,
- ekki gráta elskan mín,
enginn er tára þinna virði.
Bloggar | Breytt 6.1.2013 kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2013 | 17:12
Konan og homminn 4.1.13
Með homma ef kona villist þú vega
ver sterk og tak því karlmannlega.
Eitthvað er broguð allflest vara
og ekki til neins að vera að trega,
- snúðu í hann rassinum bara.
Bloggar | Breytt 5.1.2013 kl. 16:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2013 | 07:06
Á horriminni 3.1.13
Horrimin er háttum nær,
hart að mörgum sverfur.
Alþingi er hún einkar kær
ei þeim gæskan hverfur.
Karlinn sagði sjáðu sko:
- Sáttir vel sér hegða,
það er vandinn víst er svo
að vill því út af bregða.
Á hér lítill enga vernd?
Andakt síðan stundi:
- Það er raun að vera
með réttlætiskennd
og riðið eins og hundi.
Gróðahyskið ,,gradólera,
grafir blasa öðrum hér.
Þeir sem enga ábyrgð bera
allt þeir mega leyfa sér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2013 | 22:46
Nýársóskir til vina og vandamanna 2013
Gleðilegt árið þú bæði og þið
það megi gæfu okkur færa,
allsnætir bera og yndi og frið
og ástina styrkja og næra.
Bloggar | Breytt 2.1.2013 kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2012 | 14:51
Áramótadropinn 31.12.12
karl á stútinn renna má.
Rétt ei lútinn rólar dagur,
raunasútin hverfur frá.
Bloggar | Breytt 5.1.2013 kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2012 | 14:05
Innilegar áramótaóskir til ríkisstjórnar Jóhönnu 2012- 13
Að eiga við mannleysur er ekkert grín
ei berst mér heimilisuppbótin mín.
Megi Djöfullinn draga ykkur heim til sín
er drottnað þið hafið vesölu svín.
Ég tel að enginn sem getur tjáð sig á annað borð eigi að líða trúnaðarmönnum samfélagsins að níða menn niður og kvelja orðalaust eins og gert hefur verið við mig sem öryrkja og gamalmenni og sendi því ríkisstjórninni mínar innilegustu og hjartnæmustu áramótaóskir inn í framtíð þeirra. Megi sá sem yfir henni hefur ráðið til verka og verkleysu mark á mér taka og færa þetta óbótalið frá mér, því það hefur með óheiðarleik sínum fyrirgert öllum rétti sínum til trúnaðarstarfa fyrir mig og færa það þangað sem það á frekar heima en á Alþingi!
Ég hef ekki getað fengið framfærslu eins og aðrir einstaklingar sem reka einir heimili sín. Ólög í landinu segja að kvæntir og giftir eigi ekki rétt á heimilisuppbótum en ég missti konuna frá mér vegna veikinda fyrir fjórum árum og hefur hún haft annað lögheimili í öðrum landshluta í meira en þrjú ár.
Engan þingmann hef ég getað fengið allt kjörtímabilið til að lagfæra ólög sem stangast á við stjórnarskrá og mannréttindi í landinu og sveitarstjórn mín í Fjarðabyggð hefur neitað bakábyrgð sinni fyrir framfærslu minni, þótt svo sú ábyrgð sé og hafi verið í gildi frá aldaöðli. Kjósið ekki fjórflokkinn! Hann hefur allur margbrugðist þjóðinni og mun gera það áfram svo lengi sem þjóðin hefur ekki vit til að rísa gegn honum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2012 | 11:36
Áramótaspeki Svarra 2012-13
Oft mætti gott af orðahrynu,
- sem af hæli vitleysinga,
- taktu þig saman í andlitinu,
- fólkið hatar aumingja.
Sá er vinur til vammsins segir
en vandi margur sækir á,
eins með sönnu og engu síður
oftar satt kjurrt liggja má!
Bloggar | Breytt 5.1.2013 kl. 18:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2012 | 15:59
Jólaveðráttan 29.12.12
Austanlands hveður regni reita,
Reykjavík ætíð viðrar bestan
á Norðanlandi norðaustansteyta
og niða stórhríð fyrir vestan,
Bloggar | Breytt 31.12.2012 kl. 03:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2012 | 12:12
Stoltur faðir 27.12.12
Stúlkan að sér strákinn dró
og stoltur pabbinn mælti klausu:
- Af vildiskonum víst er nóg
en vandinn er að finna þær á lausu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2012 | 11:03
Kjósið ekki fjórflokkinn 2013
Sjálfstæðismenn til synda ei lúnir
í sóðaskap nýjan langa
og alltaf eru einhverjir tilbúnir
undir þeim að ganga.
Bloggar | Breytt 31.12.2012 kl. 03:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
neisti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar