Þekking 1.8.12

Það er gagn að þekkingum

því skal námi að hlúa.

Margt er byggt á blekkingum

sem betra er ekki að trúa.


Svar við skemmtiboði 1.8.12

Lifðu í sukki þá líður þér skást,

lengi má gleði okkar bæta

og ei skaltu vinur um vera að fást

öðrum þótt sýnist ei glæta.

Um þessi heilræði oft þó ég brást

en æsa mig vil til að mæta.


Girndin 31.7.12

Til ásta vill klöngrast hver kappi,

kynmaka tíðum er falað.

Girndin er gimsteinn á vappi,

gott er að fá henni svalað.

Allt líf á jörðu lýtur þessu afli,

lífið er þar sjálft að tafli.


Ferðast í bað 31.7.12

Enn til lífsins eljan brokkar,

er í baðið næsta roka.

Buxur, skyrta, brók og sokkar,

bíða færis oní poka.


Tíu króna afsláttur 31.7.12

Það er tíu króna afsláttur í dag,

ekki mátti landsliðið betur sín megna.

Bensínverð nú kvelur hvers hag,

hefðu buddur þolað meira þess vegna.


Fram úr amstrinu 30.7.12

Þegar fram úr amstrinu ei við megum sjá,

ætla ég sé hollast að setjast bara niður

og drekka kæru vinir og drekka sig því frá

og dubla við ástina það er góður siður.

Soffía 29.7.12

Á Skorrastað sat ung dönsk stúlka Soffía við að prjóna sokk og var hún glöð og gamansöm og bað mig að yrkja líka um sig og hún fékk þetta:

Soffía 29.7.12

Soffía er sæl og glöð,

situr við að prjóna.

Hippastelpan handahröð

hannar sokk í skóna. 


Að Skorrastað 29.7.12

Að Skorrastað ég tánum tylli,

tal er þar ei sem hjá bjánum.

Doddi minn telur af tærri snilli

Theu stundum slæma í hnjánum

- en geta verið góða á milli.


Meira magn en gæði 29.7.12

Víst er í heimi víðum

víða samin kvæði

og eigi orðum blíðum

að menn þannig læði.

Mitt er móttó tíðum

meira magn en gæði

en má oft lýsast lýðum

leitast sé við í næði.


Allt er hægt 28.7.12

Það er æði margt ekki hægt

þó allt sé talið hægt

nema að barna dauða kellingu.

Í Neskaupstað er í neyðum engu vægt 

og nú talið sannað að það sé líka hægt

en enginn fái að vita í hvaða stellingu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband