Opið bréf til forsætisráðherra Bjarna Ben um gamalmenni og öryrkja 19.1.17

Gott kvöld forsætisráðherra Íslands Bjarni Ben.

 
Þú áttir þinn þátt með framsókn í því á síðasta kjörtímabili að leiðrétta ekki þær skerðingar sem vinstri stjórnin gerði á öryrkjum og öldruðum.
 
Ég hef lesið á vefmiðlum að það nemi nú 60 - 70 þúsundum á mánuði sem okkur í þessum hópi hefur vantað á kaupið okkar og er þar um vöntun að ræða sem varað hefur til fjölda ára.
 
Ég skrifaði Sigmundi Davíð opið bréf á sínum tíma, eins og ég geri þér núna og sagði honum að ég leggði á hann ófarir og bölvun ef hann leiðrétti ekki launin mín á við sín laun en eins og alþjóð veit fengu allir hálaunamenn leiðréttingar á þeim alla leið til baka og allskyns fríðindi að auki að minnsta kosti þingmennirnir.
 
Man ég þar t.d. til að nefna frí gleraugu og væri það ekki ofætlað af ríkissjóði til handa mínum launaflokki ásamt heyrnartækjum því fæstir þeirra munu hafa nokkra fjárhagsgetu til slíkra kaupa frekar en til annara hluta þótt sárlefa vanti.
 
Þótt maður losni við eitt óbermið og óþokkann úr trúnaðarstöðu við almenning þá sprettur bara upp annar í staðin. Það dæmi tel ég sannast hér rækilega að þú skulir Bjarni taka við forsæti ríkissjórnar af Sigmundi Davíð.
 
En það er annað að upplifa níð af ,,Pétri og Páli" en að upllifa að það séu alltaf sömu mennirnir að fara illa með mann. Mér finnst þú Bjarni Ben hafa komist upp með það alltof lengi og er mér sagt af þeim sem lagt hafa á sig að lesa stjórnarsáttmála þinnar nýju ríkisstjórnar að ekki bóli þar neitt á að bættur verði hagur aldraðra og öryrkja.
 
Ég sé ekkert annað ráð í stöðunni sem mér mætti til bættrar stöðu verða en að ákalla almættið og biðja það um aðstoð við að rétta upp auðvaldsklær þínar sem þú hefur kreist svo fast og lengi að fátæklingum á Íslandi og leggja á þig ríkulegar hörmungar og bölvun fyrir vikið.
 
Ég vona fljótt þú verðir hrakinn frá,
sem villidýr þú hættir bága að reita.
Það ku vera erfitt við almættinu sjá
ef í máli af festu vill sér beita.
 
Kveðja Einar Sigfússon
 
Es eftir á að hyggja held ég að í sögum frá fyrri öldum þar sem títt var að lagt væri á menn og skepnur að þeim hafi tíðast eða alltaf verið gefinn kostur á að sleppa undan álögum eða að milda þau verulega. Ég gaf Sigmundi kost á því í þessu máli og geri nú hið sama við Bjarna:
 
Ég vil biðja almættið að sleppa Bjarna Ben við harðar refsingar þessara níðgerða sinna ef að hann heitir að bæta ráð sitt varðandi hlunnfarir á aumingjum þótt svo ekki sé gert nema í hljóði og sér um á fyrsta næstkomandi þingi að greiða mér og mínum launahópi hið bráðasta það sem af okkur var tekið framreiknað með vöxtum og vaxtavöxtum þrjú ár aftur í tímann. ES

Um fjörhestinn 19.1.17

Þótt klár gerist kófsveittur móður
kann hann samt á öllu að taka,
- still þig minn gæðingur góður
og gefðu mér tauminn á slaka.


Traust 16.1.17

Það tekur oft mikinn tíma
traust sitt upp að byggja
en aftur á móti augnablik
því öllu niður glutra.
Mörg eru þannig augnaköst
hjá úrhrakinu Bjarna
en hann hysjar sig alltaf
aftur upp
að ausa þjóðu skarna
og nú er hann orðinn
forsætisráðherra
fjandans limurinn sá arna.

Á stjórnarsetrum 15.1,17

Á stjórnarsetrum mörgum
harðar gerast hefndir
sem hendi sé þar veifað
er gott þar sett í fórn.
Við viljum gjarnan trúa því
að orðum fylgi efndir
en ei bólar á slíku
hjá flestri ríkisstjórn.

Haffi skrifar meira 12.1.17 - LÍÚ mellan

LÍÚ mellan býður sjómönnum ís og vettlinga Ä« kaupauka fyrir vel unnin störf! Svipað og HP Grandi gerði þarna um árið þegar fiskvinnslu konurnar höfðu skilað gríðarlegum verðmætum fyrir fyrirtækið. Þá fengu þær îs. Eru Íslendingar virkilega heimskastir í heimi?


Haffi skrifar mér 12.1.17 - Heimska þjóð, fær það sem hún á skilið

Núverandi ríkistjórn getur níðst og ryðið öryrkjum og öldruðum Ä« rassgatið þannig að blæði úr, en það má ekki taka krónu af útgerðinni. Þetta er brandari dagsins og allveg fáránlegt hvað Íslendingar eru heimskir þegar kemur að kostningum.

Viðreisn er ekkert annað en gamlir óánægðir Sjálfstæðismenn í sparifötum sem fengu ekki að vera memm í síðustu stjórn. Útgerðin hefur skilað tugum milljörðum í arðgreiðslur á hverju ári frá hruni en samt má ekki skerða hár á höfði þeirra því greinin þart að skila arði. Eins og sagt hefur: LÍÚ stjórnar landinu en ekki kostnir 
alþingismenn.
 

p.s. Aldraðir og öryrkjar skila aldrei aðri, en ryði það þjóðarbúinu í hel ef þeir fengju mannsæmandi laun eða möguleika til þess, það nýjasta hjá þessari stjórn var að taka alla möguleika að þessu fólki til að bjarga sér sjálft með því að vinna sér inn aukakrónur. Áður gat þetta fólk haft kr:109,000 á mánuði án þess að skerða kr á móti kr, en núna ekki nema kr:25,000 á mánuði.


Páll Magnússon ósáttur við ráðherraskipan 11.1.17

 
Páll fékk ekki ráðherrastól þrátt fyrir yfirburðafylgi yfir landið allt og hefur látið óánægju sína í ljós opinberlega.

Ég er Páli alveg sammála og ánægður með að hann skuli setja vandlætingu sína í ljós á svo ríkulegan hátt. Nóg tel ég samt hafa verið af skriðdýrum fyririr flokksforystumönnum flokkanna í gegnum tíðina þrátt fyrir það.
 
Ég vona svo sannarlega að Páll í þessari eins manns meirihluta stjórn megi rífa sig upp oftar til mótstöðu við flokksforustuna og stöðva hana af í vondum málum svo sem að alltaf hefur verið öllum flokkum hér gjarnast það er að níðast á gamalmennum og aumingjum.

Sveitafélagið mitt 7.1.17

Við fátæka er því ekki annt
og oftast gott við doska.
Í Fjarðabyggð er flestu vant
af félagslegum þroska.


Auðsöfnun og örlæti 6.1.17

Ekki yfir auðsöfnun sleva,
öðrum er betra að láta í té.
- Þeim er gefið sem gefa,
gleð þína vini þótt í litlu sé.


Trump 6.1.17

Hann er milljónamæringur
og má flest leyfa sér,
káfar í kuntur
og kemst vel upp með það.
Er að gerast forseti
fór létt með kosningarnar.
Hverjar afleiðingarnar verða
það er ekki enn vitað.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband