Einfaldleikinn 12.5.14

Flókinn hlutur fjöldann gremur

að  fást við ef hann lætur sig.

- Einfaldleikinn öðru fremur

ei hefur mikið flækjustig.


Svona nokkurn veginn 10.5.14

Ekki verður annað séð

en óreglan sé frat

og geti erfitt öðrum með

sem er akkúrat.

 

Og að þetta ástand bera

ýmis gerist sleginn

sælast mun því sýnist vera,

svona nokkurn veginn.


Besta ráðið til auðlegðar 9.5.14

Margur vill auðgast ef að hann getur

og ef það þið viljið í búð skulið ramba

því það er fátt sem að sig borgar betur

en bjórdósir þær er úr megið þamba.

- Þið fáið fimmtán krónur fyrir stykkið

og fljótlega þannig auði upp rykkið.


Fordómar 5.5.14

Á ótal kanta orðsins glam

oft á vegi hallast

en ef þú dæmir fyrirfram

fordómar munu kallast.


Tamið á tölt 28.4.14

Mínar hestatamningar felast helst í ánægu þeirri er ég geri mér í að horfa á aðra og aka stundum á bíl mínum fram með þeim reiðmönnum er ferðast um reiðgötur fjarðarins.

Í dag er ég fylgdi einum eftir ekki mjög vönum þá hugsaði ég um það hversu oft það væri að menn gætu ekki setið á sér varðandi of mikinn hraða og fyrr en varði hafi ég ort þetta ljóð:

Upp af feti er best að byggja

beislagand, ég ætla satt

þá er vandinn, að skalt yggja

ekki vera að fara of hratt.


Yndið og armæðan 28.4.14

Yndið er armæðurúningur

er upphefur leiðir hvata.

Hvað er ást annað en núningur

ýmissa snertiflata?


Nákvæmni meistaranna 26.4.14

Heljarmennum heims um ár

hentar ekki draga að dár.

Oft hjuggu af tölur en ei gerðu sár

upp á klofið kviðarhár.


Engu að treysta 26.4.14

Til mökunar margs er að freista

megi fá limina reista,

- það er ekki tittlingi að treysta

sem tengur er við réttskapað eista.


Loforð og efndir 25.4.14

Ekkert heyrist frá ríkisstjórnarflokkunum um efndir marggefinna loforða kosningar um áframhald EBS umsóknar:

Ýmissa er sælan að svíkja,

sífellt þeim loforðin ríkja

og svo verður þá

að svara út í blá,

efndirnar verða að víkja!


Vinstri- grænir eru að sækja í sig veðrið 24.4.14

Eftir langvarandi linnulaus svik og öfugsnúning við stefnumál flokksins eru nú Vinstri-grænir að sækja í sig veðrið og safna orku og atkvæðum eftir mikið hrun til að komast á stjórnpalla mannlífsins á nýjan leik. Þegar Steingrímur flúði formannssæti flokksind eins og sökkvandi skip tók Katrín við því keflinu. Hún hafði fylgt Steingrímsarminum í klofningi þeirra sem höfðu sagt sig frá honum vegna óheiðarleika hans við að standa við stefnumál flokksins og fara í staðin þvert á móti þeim flestum.

Ég man ekki til þess að Katrín sú klyfi sig nokkurntíman frá þeim svikavef og spillingu stjórnmálanna en festir eru fljótir að gleyma.  Í gær birtist í fréttunum úrslit könnunar um heiðarleika æðstu manna. Þar var Ólafur Ragnar forseti í 1. sæti og viti menn:  Katrín yfirgnæfði þá alla aðra þingmenn í 2. sæti. Fólkið hvítþvær nú hina bersyndugu konu fyrrum í skjóli Steingríms og fylginaut og dyggum stuðningsmanni í hinum verstu óþokkabrögðum og svívirðilegustu svikamálum seinni tíma á Íslandi:

Katrín Jakobs 24.4.14

Illvirki muna oft er töf

og má best til vega.

Katrínar er kátleg gjöf

að kalla heiðarlega

- en oft þó gerist göróttir vinir

geta þeir verið skárri en hinir. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband