Djásn féll um snjóloft 26.2.18

Svo er nú það að fer sem fer,

féll mín Djásnin niðrum skarir.

Lífið er brekka ljóst það er

og líður oft fyrr en varir.

Björgun varð þó í þetta sinn

og það var mikið lán vinurinn.


Af orsökum fitu 26.2.18

Þegar menn fara í ástarlífi
eitthvað að láta sig
um nætur leita í matarforða
og hakka í sig dátt.
Þetta hefur fitað marga
fleiri heldur en mig
og ég segi þér vinur minn
þú skalt á því vara þig
því viljirðu halda í úlitið
er hitt í rétta átt
að þrífa bara til kellu sinnar
og fá sér góðan drátt.

Lukkunar vild 26.2.18

Þegar menn taka fyrir fram
fá þeir stundum hroll
er kemur að skuldadögunum
og greiða á þann toll.
Þá eiga menn oft ei fyrir því
frekar en í fyrra sinn
og framlengja vilja á nýjan leik
Já, svona er nú heimurinn.
 
Það er mikil list að lifa
og ljóst vilja margir reyna
að upplifa lukkunnar vild.
Að stela mörgum hugmyndum
og sameina þær í eina
ýmsir vilja segja
að sé hin sanna snilld.

Af heilræðum Svarra 24.2.18

Þegar menn fara í ástarlífi eitthvað að láta sig

um nætur fara leita í mat og hakka í sig dátt.

Þetta hefur fitað marga fleiri heldur en mig

og föngulegi mjói maður þú ættir að vara þig.

Því viljirðu halda í úlitið þá er hitt í rétta átt,

Þrífa þá til kellu sinnar og fá sér góðan drátt.

 

Gátur og svör 24.2.18

Margar eru hindranir á huga okkar settar,

heimskur til að leysa þær reynist sjaldan fær.

Það er sagt að spurningar allar séu léttar

ef maður aðeins hefur svarið til að leysa þær.


Eilífðar spurn 20.2.18

Hver veit um hvað
forsjónin oss til leggur?
Hvað þýðir að fást um slíkt
í rúmi og tíma?
Einum hún gefur,
annan niður hún heggur.
- Allt í lífi á jörðu
er eilífðar spurn og glíma.

Lögbann var sett á fréttaflutning Stundarinnar fyrir kosningar 2017

Ljótt er ástand ég segi að sann,

með soran úr auðvaldsrann.

- Segja má aðeins sannleikann

um sauðsvartan almúgann...


Heiðursfólk 10.2.18

Afi oft á Skjóna sínum

hleypti á tæpast vað

og lukkaðist að sigla

vítt um hnöttinn.

Amma hafði tennur þrjár

sem gengu sitt á hvað

en samt tuggði hún

allan mat í köttinn.


Eigingirni 9.2.18

Ýmsir vilja eiga makann,

aumur hver vill á því frest.

Settu ekki sátt á hakann

sátt er jafnan til kosta best.


Pólitík 29.1.18

Pólitík er ógeðsleg tík

er treystir mest á

að fólkið bara þegi.

Menn eru með hörkunni

teknir í ,,píp“,

hroðalega á hverjum degi.


Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Feb. 2018
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28      

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband