Skildi það skaði eða bót að mestu hryðjuverkamenn allra tíma á Íslandi yfirgefi landið? 30.10.14

Árið 1980 komst Alþýðubandalagið í stjórn á Íslandi eftir að hafa lofað þjóðinni gulli og grænum skógum í kosningunum svo sem að bæta lægstu launin og minnka launamisréttið og voru ásamt samstarfsflokkunum í aðeins eins manns meirihluta. Fljótlega efir kosningarnar lýsti ríkisstjórnin svo yfir að nú væri ekkert svigrúm til launahækkana og verkalýðsmálefnin loguðu í fréttunum. Verkalýðurinn fékk þó eftir mánaða harðvítuga baráttu þrjú eða fjögur% í kauphækkun ofan á sín lágu laun sem var auðvitað algjör skítur á priki. Hafið þið ekki heyrt eitthvað þessu líkt fyrr hverjir svo sem haldið hafa um stjórnartaumana á Íslandi?

Strax í kjölfarið krafðist svo læknastéttin 40% hækkunar og fékk það svo orðalaust að hvergi var minnst á það í umræðunni eftir á nema einu sinni í sjónvarpsfréttum og síðan hefur ekki mátt minnast á það í fjölmiðlum svo sem landsmálablöðum en ég margreyndi það á sínum tíma um árabil. Þetta hefur mér þannig virst allt ein allsherjar mafía sem stjórnar og stendur saman um óhroðann í landinu og hefur varið hann síðan fyrir orðræðunni

Hvað skyldi læknastéttin hafa haft svo biturt að vopni til að ná svo skjótt og fyrirhafnarlítið markmiðum sínum til ofurlauna og var þetta þó talin hálaunastétt fyrir þann tíma.  Og síðan hefur heilbrigðiskerfið logað stafnanna á milli í niðurskurði á öllu og öllu öðru en launum læknanna sem sífellt hafa hækkað meira og meira hvað svo sem öðrum launum og rekstri heilbrigðiskerfins hefur liðið.

Jú, vopn lækna var að hóta að fara að öðrum kosti í verkfall gegn því að vinna óþörf og ónauðsynleg verk og það hreif svo snilldarlega að meira að segja alþýðuforkólfurinn Svavar Gestson félags-heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra í eins manns meirihluta samþykkti það sem þó honum hefði verið í lófa lagið að fella hefði hann haft snefil af dómgreind og heiðarleik gagnvart einkalífi fólksins í landinu og sjálfsvirðingu gagnvart loforðum sínum margendurteknum fyrir kosningar og verkalýðsforystan var lá öll lémagna hjá afvelta í sömu krónni og æmti hvorki né skræmti.  

Nú eru læknar í fyrsta skipti komnir í alvöru verkfall og hóta að yfirgefa landið ef þeir fái ekki 30% ofan á kaupið sitt þegar alþýðu manna var boðið upp á aðeins 2,8% en ríkisvaldið býður læknum nú aftur á móti 3% svo mikið má segja að beri á milli. Ég tel að fyrir löngu hefði verið búið að grípa til þess ráðs að miða launahækkanir við krónutölur en ekki prósentur til launajöfnunar og minkunnar misréttis hefðu nokkuð örlað á heilbrygði og heiðarleik í fari meirihluta þingmanna á síðari tímum í landinu.

Landsflótti lækna gæti orðið mesta gæfuspor í sögu þjóðarinnar verði staðið svo að þeim málum að þeir létu verða af því sem auðvitað er vonlítið í landi eins og okkar þar sem samtakamáttur auðvaldsins er þannig vaxinn að þeir ríku gramsa alltaf meiru og meiru til sín á kosnað þeirra fátæku sem súpa svo dauðann úr skel.  Vera lækna er fyrir löngu orðin að ég tel að mesta stríðsglæparekstri og harmleik allra tíma í landinu.  Þeir hafa lengi drepið yfir 1000 börn á ári svo mörgum þurfa þeir að bjarga í staðin til að jafna út þá reikninga.  Hvar ætli þessar slátranir á fólki, sem stjórnvöld fyrirskipa hér svo galvösk í landi þar sem nóg er af að bíta og brenna, taki eiginlega enda þegar þróun mála er yfirleitt alltaf þannig að gengið er skref og skref og skrefinu lengra.  

Ég skora bara á böðla ríkisvaldsins að fara sem fyrst þeir eru fyrir löngu búnir að gera nægan óskunda þó lát verði á því og tel því fyrr vera því betra. Ég get ekki séð að þeir eigi neinn rétt á fleiri krónum en það sem hefur verið dritað í kaupauka til öryrkja og gamalmenna sem hanga á horriminni og hafa úr margfalt minnu að moða en þeir...  Ég myndi frekar ef ég mætti velja að deyja úr sjúkdómum á lífsleiðinni eitthvað fyrr en ella vegna læknaskorts en að fá enga möguleika til að lifa af því ég væri drepinn af einhverjum mannræfli sem hefði slíkt að atvinnu fyrr en ég fengi litið þennan heim... Það er sagt að allt gangi í hring og sama sagan endurtaki sig alltaf aftur og aftur - og mörg sagan er svo ljót...

 

Þrár og þjóðskipulög

Til að viðhalda lífi er hin þrotlausa þrá

er þraut marga bugar ei rög,

þar taumlausar ástríður takast mega á

við tröllaukin þjóðskipulög.

 

Um ævina hef ég svo ýmsu kynnst

að orð mín ég tel með sanni,

Það er ekki vont að vita sem minnst

þá vefst það ei fyrir manni.

 

Drápseðlið

Minkurinn drepur af ánægjunni

af því að drepa

og dregur saman hræin,

maðurinn myrðir fyrir ánægjuna

af peningunum

sem mætastur hann virðir og þráir

oft eingöngu

þótt beri hann engann til þín kala

er hann alltaf til í slaginn

en hann býður kúnunum yfirleitt

góðan daginn.

Þar liggur munurinn á minknum

og manninum

að minkurinn kann ekki að tala!

 

Vegir syndanna

Glæpamaðurinn fyrstur fer

til fleiri verka að hugsa sér,

samviskan gengin,

samúðin engin,

- sá iðrar sem syndlaus er.

 

Vegið úr launsátrum 7.9.13

Af siðleysi einu samfélög hrynja

slóttugar níðsálir mannrétt ei virða.

Sterkasta vopn hinna stríðandi kynja

sturlunin launsátra börnin að myrða.

 

Brjálæði þingheims sýnir þjóð sem er spillt

og það að vitleysan við einteyming ei ríði:

Læknastéttin fékk 40% ofaná kaupið sitt

fyrir að taka þátt í landsins mesta stríði.

 

Ríkisstjórnin læknunum ræður með sönnum

til rangvega mútum er beitt hverja stund.

Hennar dýrustu ráð eru að dytta að mönnum

drápshendur verði þeim lausar um stund.

 

Illsefjaður maður vinnur ódæði með hrað,

æra hans fýkur sem fínmulið skarn.

Það þarf engan speking til að segja um það

á hvaða stundu barn verður barn.

 

Læknirinn drepur og læknirinn mer,

ljóst þó ekki allir haldnir glæpasinnu

en Landlæknirinn segir við lækna ef svo er:

,,Leita skulið ykkur þá að annarri vinnu”!

 

- Að fella einn djöfuls fantinn með sér

til farsædar þjóðar á ég bendi,

- hverri vonlausri sálu er vill falla hér

í vígi fyrir sjálfs síns hendi.

 

Af stúlknaránum í Óhio 10.5.13

Til réttlætis mörgu er mismunað,

mannræninginn barði úr stúlkunni börnin

og fær á sig morðkærur fyrir það

en fríspil er læknanna þar er engin vörnin.

 

Eiðstafir og kristin gildi 11.5.13

Sjálfstæðisflokkurinn sá sér til meins

er sögðu menn: ,,Kristni upp hefjum"!

Eiðstafir sannarlega eru ei til neins

embættisglæpum að halda í skefjum.

 

Bænir allar sem fyrir bý 2013

Margur hefur bófinn bölið að oss hert

og bænir allar verið sem fyrir bý.

Við getum ei ráðið hvað okkur er gert

en við getum ráðið hvað við gerum við því

en það er sama sagan og sögnin er ei hlý,

- sturlanir þeirra stöðvar ei neitt

nema stungur hjörtun í.

 

Frá sjónarhóli stjórnvalda 2013

Hversu sem við marga myrðum,

máli skiptir ei hvernig fer,

- þetta eru allt skepnur

hvort sem er!

 

Í dimmunni

Fantarnir skvetta úr fötunum

fær margur undan að skjálfa.

Skilning fá fæstir á hlutunum

fyrr en káfar upp á þá sjálfa.

 

Heimurinn er harla grimmur

hvergi skjól öruggt að fá.

Hann er bæði dökkur dimmur

dragnist ei sólin á stjá.

 

Morðingjar skuggunum skjótast

skelfdan ber margan af leið.

Glæpa er launráðið ljótast

er líknarinn bregst sínum eið.

 

Um ógnarstand þarf ekki að ljúga

Ísland ber nú víða á góma.

Úr þjóðinni margir merginn sjúga

munu fáir af hljóta dóma.

 

Kirkjan er ræfill og riðin í haft
ríkisstjórn lætur sig merja.
Hún ætti að rísa upp rífandi kjaft
og reyna sitt fólk að verja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband