Hjálpum þeim 16.4.17

Þrátt fyrir Drottins beiðslu

hún borist hafði á slig

hún var sem í leiðslu

um lífið er tjáði hún sig,

- mig langar að læra hárgreiðslu

og þurfa ekki að selja mig.


Ójöfnuður 9.4.17

Hlaðið er undir ríka

en hinir fá háð og spott.

- Það væri ansi fullkomið

ef allir hefðu það gott:

 

Þótt skítnum úr þér ekki bifir

þróast þitt tilveruspil.

Hver lærir svo lengi sem lifir

því list er að vera til.


Setið á svikráðum 5.4.17

Það fá margir að kenna á kúpunni,

kræfur er oft sá tippalangi.

Einhver verður að sitja í súpunni

þar sem svínarí er í gangi.


Haffi skrifar mér 5.4.17 - Flugvöllur frekar en kvótinn

Þurfum við ekki að losa okkur við svona ríkistjórn sem ræður ekki við almannahagsmuni.
Væri nú ekki nær að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um hvort kvótinn se tekin og boðinn upp a almennum markaði svo allir sitji við sama borð? Er það ekki meira aðkallandi svo hægt se að viðhalda eðlilegu heilbrigðiskerfi, skólakerfi, löggæslu og vegakerfi? Heldur en að fara með Rekjavíkurflugvöll i atkvæðagreiðslu?


Memory

Fyrir 1 ári síðan
Sjáðu minningar þínar
 
 

Skálkar 4.4.16
Sigmundur takta tekur snjalla,
tannhvöss gerist kjaftaglíma.
Mörg eru nú sögð metin falla
mestu skálka allra tíma.


Haffi skrifar mér 4.4.17 - Aumingja ferðaþjónustan og útgerðin

Ferðaþjónustan heldur áfram að hækka sínar vörur og þjónustu og hver á að taka á sig skellinn, jú almenningur nú skal gengið fellt um 30% það er yfirvofandi á komandi mánuðum. Hvað þíðir þá launahækkunin sem samið var um síðast? Jú við búum alltaf við sama vandann og hann er Íslenska krónan. Afhverju tökum við ekki upp erlendan gjaldmiðil? Erum við endalaust til i að láta  r... okkur i þurrt r...?
Enn færist eignaupptaka á færri hendur.
Fyrir hrun kostaði $:1,00 kr:65,00 en núna kostar hann kr:113,00 & ferðaþjónustan og útgerðin talar um að ísl krónan sé of sterk. Nei nû er nóg komið, krónan er enn alltof veik, skoða ætti ekki málið fyrr en $ er aftur komin í kr:65,00
Hvernig lifði útgerðin þå? Ekki hvar taði neinn þá, hvað er vandamálið?? Jú ÍSLENSKA KRÓNAN og verður alltaf..
Sent from my iPad


Haffi skrifar 3.4.17 - ,,Íslendingar heimskasta þjóð í heimi"

Alldrei munu erlendir bankar hafa áhuga á að kaupa íslenska banka á meðan við höfum ísl krónuna. Alvöru fólk í bankageiranum erlendis hlær sig máttlausa þegar talað er um ísl bankakerfið og segjast ekki treista einu orði frá þeim né seðlabankanum sjálfum.
Aðeins Vogunarsjóðir (Öðru nafni Braskarar) & glæpagengi undir nafni vogunarsjóða kaupa svona sfeiflukendan áhættusjóði eins og íslenska bankakerfið er. Þarna geta þeir leikið sér á kostnað almennings (sem er alltaf jafn blindur, eða heimskur) með að veðja þúsund milljörðum með styrkingu krónunnar og bíða þangað til heimsku íslendingarnir elta og halda að þeir græði (sumir græða vegna þess að þeir ná að selja áður en allt hrinur) svo þegar þeir sjá að hægist á eltingaleiknum þá skella þeir krónunni með því að veðja á móti krónunni með eittþúsundog fimmhundruðmilljónum og hirða allann pottinn.


Spaugað með það

Í blóma lífsins 29.3.17

Yndisiegur sá átjándi,

- inn er hafði barið!

Ekki þunnur þrettándi

þetta kvennafarið!

 

Bílakaupin 30.3.17

Ungur maður auglýsti bíl,

orðaði að lítið væri riðið

er hann hefði að geyma.

Glaður birtist kaupandi

sem gera vildi díl,

girnileg þótti honum frúin

sem ein var þarna heima.

Hún sýndi honum gripinn

sem og vera ber.

Hann sagði hann er góður

þessi handa mér

en veistu nokkuð annars

hvar riðið í honum er?

Undrandi var á svipinn

er ansa tók hún því

- það er nú aðallega

aftursætinu í.


Stjórnvöld á Íslandi fyrirskipa eyðingu fjölda stálhraustra nautgripa 2017

Ég sá einhversstaðar í fréttum fyrir skömmu að fyrirskipuð væri eyðing fjölda stálhraustra nautgripa af þeirri ástæðu einni að þeir hefðu verið fóðraðir á mjöli úr sláturúrgangi.

Ég varð undrandi á fréttinni en þótti hún alveg í samræmi við marga aðra vitfirru stjórnvalda er mér finnst alltof áberandi í íslensku þjóðlífi.

Mér datt í hug það sem sagt hefur verið að allt gangi í hring og sama sagan endurtaki sig alltaf aftur og aftur og er það að sjálfsögðu með vitleysuna eins og hvað annað í tilverunni.

Hugsun mín flaug til þeirrar hringrásar í náttúrinni sem er t.d. í Afríku svo eitthvað sé nefnt. Þar þykir ekkert sjálfsagt eins og víða annars staðar að saur og hlandi mannanna sé kastað fyrir bý.

Notaðir eru kamrar og dælt úr þróm þeirra af og til eins og t.d. er gert hér á landi undan húsdýrunum okkar og áburðurinn borinn á akrana og sáð í þá sem vera ber og afraksturinn étinn af fólkinu sem skilar honum síðan aftur af sér í kamrana og hringrásin hefst upp á nýtt.

Á Ísandi tel ég góða tækniframför að nýta sláturúrganginn og gera úr honum mjöl sem mun vera mjög gott prótínfóður t.d fyrir nautgripi og svín en trúlega ekki ráðlegt fyrir fé þar sem í því gætu leynst sjúkdómar á borð við t.d. riðu og garnaveiki en að það megi ekki nota til neinns annars hluta en áburðar er að mínu viti alveg ga ga ga og trúlega frakar en margt annað fyrir einhverja annarlega hagsmuni einhverra!!!:

Sláturúrgangur 4.4.17

Skyldi ei rétt að krafsa í það

sem gefur þjóðinni klink

og koma sláturúrganginum

í hringrásina að nýju.

Mér sýnist það alveg rakið

fyrir refi bæði og mink

og reyndar muna ei vekja

nautum og svínum klígju.


Um bloggið

neisti

Höfundur

Einar Sigfússon
Einar Sigfússon
Ég Einar Sigfússon er Óðalsbóndi í Efri-Skálateigi 2, í Neskaupstað. Hættur hefðbundnum búskap fyrir löngu vegna heilsubrests og er öryrki. Ég er enn með nokkur hross á jörðinni og örlitla ræktun í félagi við annan uppgjafabónda sem er Ásvaldur Sigurðsson framkvæmdastjóri í Neskaupstað. Hann bjó fyrst á Hömrum við Akureyri og síðar á Geithellum í Álftafirði. Hann rekur nú verslun í Neskaupstað og er eigandi og hennar.
Apríl 2017
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Nýjustu myndir

  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • 10959352 10152864324913964 3615740646773882780 n
  • Kjarnveig 5 vetra
  • Blíða 3ja vetra
  • Blíða veturgömul

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband